23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1675 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)
111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu
Einar Jónsson:
Af því að eg hefi átt sæti í samgöngumálanefndinni ásamt öðrum, og af því að eg er einn af þeim, sem eindregið eru á móti þessu frumv., þá finst mér það skylda mín að gera grein fyrir þessu.
Háttv. framsm. minni hlutans (Jóh. J.) hefir að vísu rækilega gert grein fyrir afstöðu minni hluta nefndarinnar, en eg fyrir mitt leyti hefði helzt óskað, að nefndin hefði ekki komið fram með frumv. hér í deildinni; eg hefði helzt kosið, að henni hefði virst þetta svo óaðgengilegt, að hún hefði ekki treyst sér til þess að semja þetta frv.
Eg get ekki haggað mér frá þeirri föstu sannfæringu, að eignir Thorefélagsins séu als ekki tryggar, að þær séu í rauninni ekki mikils virði. Mér hefir að vísu verið sagt, hvað skipin heita, hvað þau muni kosta o. s. frv., en mér er þó með öllu ókunnugt um hag félagsins. Það eitt veit eg þó, að flest skipin eru gömul og léleg, og virðist því ekki ástæða til að leggja mikið fé til slíkra kaupa.
Frumv. á nú að bæta úr þessu og skipin á að virða á ný af mönnum, er stjórnin kýs til þess. En mér er nú spurn: Hefir stjórnin tök á góðum og hæfum mönnum til þess starfa? Það er óneitanlegt, að virðingar, sem fara fram af ókunnugum mönnum og ósérfróðum, þær geta ekki verið öðru vísi en ófullnægjandi eða jafnvel óhafandi. Eg legg því ekki mikið upp úr slíkri virðing, enda munu hér fáir eða engir þeim starfa vaxnir. Það er engan veginn vandalaust að virða gamla muni, og þá sérstaklega skip, sem lengi hafa verið í sjó. Eg hygg því, að það væri að kaupa »köttinn í sekknum«, að hrapa að slíkum kaupum.
Eg skil heldur ekki, þegar verið er að tala um 500 þús. kr. (Björn Kristjánsson: 425 þús. kr.). Jæja, látum það vera 425 þús. kr., það verður enn þá óskiljanlegra. Ef einum strandferðabátnum, sem átti að kosta 120 þús. kr., er slept — ekki hafðir nema tveir, eins og nú er talað um —, hvers vegna eru þessar 120 þús. kr. þá ekki dregnar frá? Þetta vekur enn meiri ótrú hjá mér til þessa fyrirtækis. (Björn Kristjánsson: Þetta er misskilningur). Eg skil nú þetta eftir því, sem eg hefi þekkingu til og hygg, að minn skilningur sé hér sanni næstur.
Þá ætlast þetta frumv. til þess, að 40 þús. kr. tillagið renni til þessa félags, en það er als ekki víst, að það fáist. Thore-félagið vill fá 100 þús. kr. árlega til »driftar«, en ef þessar 40 þús. kr. fást ekki, þá verður landssjóður að borga það.
Því var fleygt í nefndinni — og meiri hluti nefndarinnar hefir endurtekið það, — að það skifti nú ekki miklu, hvort þessar 40 þús. kr. fengjust eða ekki. En eg lít nú svo á þetta mál, að landssjóður sé ekki sú peningakista, að hann skifti þetta engu.
Eg tek það fram, að eg segi þetta ekki af hatri eða kala til Thore-félagsins, það hefir ef til vill bætt samgöngurnar að ýmsu leyti — og ef hægt væri að taka þessu tilboði landinu að hættulausu, þá væri vitanlega ekkert því til fyrirstöðu.
En mig furðaði á því, hvernig háttv. framsm. meiri hlutans (B. Kr.) fórust orð um Sameinaða gufuskipafélagið. Sumt af orðum hins háttv. þingm. gat verið sanngjarnt, en það er leitt að heyra, að borið sé á félagið, að það hafi stolið af mönnum — sé nokkurs konar þjófafélag. Slík orð hljóta að vera töluð af hatri til félagsins, og skal eg ekki bera slíkt á Thore-félagið. Hygg, að hvorugt þessara félaga eigi þess konar ummæli skilið.
Hinn háttv. framsm. meiri hlutans (B. Kr.) — sem mér hefir annars virst svo sanngjarn í nefndarstörfum — gat þess, að kröfur almennings væru að fá auknar samgöngur. Þó segir hann í öðru orðinu, að vér höfum fengið nægar samgöngur — höfum nóg skip. Eg sé nú ekki, hvernig þetta tvent getur samrýmst.
Þá gat hinn háttv. framsm. meiri hlutans (B. Kr.) þess, að lánstraust Thore-félagsins væri mikið. En hvers vegna vildi félagið þá ekki ganga að tilboði nefndarinnar um það, að annast samgöngur hér í 8—10 ár og auka sjálft skipastól sinn? Ef félagið getur ekki aukið skipastól sinn með lánstrausti því, er það hefir, þá hljóta eignirnar að falla — ef lánstraustið er að hverfa.
Eg sé svo ekki, að ástæða sé til að fara frekar út í þetta, en styðst að mestu leyti við það, sem háttv. frmsm. minni hlutans (Jóh. Jóh.) hefir tekið fram.
En það vil eg þó endurtaka, að eg er á móti frumv., og þykist hafa fært fullskýr rök fyrir afstöðu minni.
Vildi eg því óska, að háttv. þingdeildarmenn athuguðu þetta mál vel, áður en þeir fara að samþykkja það, enda þykir mér ótrúlegt, að til þess komi.