23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1691 í B-deild Alþingistíðinda. (2225)
111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu
Hannes Hafstein:
Eg hafði að vísu ekki hugsað mér að taka til máls í dag, en ummæli háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) um mig sem fyrverandi ráðh. knýja mig til að koma með örstuttar athugasemdir.
Háttv. þm. gerði lítið úr þeim áhuga, sem eg hefði haft á því að fá viðunanlegar samgöngur á sjó, og sagði, að sú ferðaáætlun, sem eg hefi nú lagt fyrir þingið, sé miklu verri en ferðir gufuskipafélagsins nú.
Eins og allir geta séð og viðurkent er, jafnvel af meiri hluta þeim, sem ritað hefir hið makalausa nefndarálit í þessu máli, eru nú í boði 25 ferðir milli ríkja í stað 22, sem nú eru og strandferðirnar eins margar. Í áætlunaruppkastinu er tekið tillit til mjög margra framkominna óska frá ýmsum
héruðum, um breytingar á núgildandi ferðaáætlun, og ferðunum í fyrsta sinn þannig fyrir komið, að þær falla með jöfnu millibili 14. hvern dag frá Höfn. Þar er að vísu ekki gert ráð fyrir bygging nýrra skipa, en að öllu leyti fullnægir áætlunin öllum þeim skilyrðum, sem þingið 1907 setti. því atriði var ekki unt að fá framgengt, vegna þess hvernig allar horfur og ástandið er; en hinsvegar er það með í tilboðinu, að skipið »Bothnia«, sem hefir kælirúm, komi í stað »Laura« tíma af árinu. Tillagið er sama og sett var í fjárlögin 1907.
Þó að mér liggi í léttu rúmi, hvað þessi hv. þm. segir eða álítur um mínar gerðir, skal eg þó geta þess, að það eru alveg ástæðulausar og ómerkar getsakir, að eg hafi eigi reynt að komast að svo góðum kjörum, sem unt var. En betra tilboð fékst ekki, þegar eg var í Höfn síðast, enda var þá samkepnin engin, því herra Thor E. Tulinius bærði þá ekki á sér með neitt tilboð. Aftur á móti fer hann þess á leit, að hækkuð væri við hann borgun sú, sem Thorefélagið fær nú fyrir að flytja bögglapóst og verðsendingar, og kaupa ábyrgð á því. Um þetta áttum við bæði bréfaskriftir og viðræður, og setti hann upp 20 þús. kr. eftirleiðis. Eg lofaði honum að reyna að fá borgunina hækkaða, bæði á alþingi og hjá póststjórninni dönsku, eða að öðrum kosti að reyna að koma fram breytingu á póstlögunum í þá átt, að sendandi greiddi nægilegt ábyrgðargjald, svo landssjóður gæti keypt ábyrgðina sjálfur, og þyrfti ekki að heimta hana af skipinu, sem flytur. Hann var ánægður með þetta, og lét hann ekki til sín heyra eitt einasta orð í þá átt, að hann hugsaði nokkuð til þess, að breyting yrði á fyrirkomulagi póstferðanna að öðru leyti, og svo fór eg frá Höfn í janúarlok, að ekki lét Tulinius mig renna grun í, að hann byggi yfir neinu tilboði öðru en þessu, að flytja bögglapóst fyrir hækkað gjald, eða án ábyrgðar.
En nú sé eg á skjölum þeim, sem lögð hafa verið fram á lestrarsalnum þegar eftir að víst var um stjórnarskiftin, að einmitt sömu dagana, sem við vorum að bræða þetta heima á skrifstofu hans, hefir hann verið að útbúa umboð til sín til þess að gera þetta fræga tilboð, sem nú höfum vér til umræðu. Ef það hefði verið meining Tuliniusar að láta Ísland njóta þessara makalausu kostaboða, hvað sem öðru liði, þá virðist svo sem það hefði verið rétt að trúa mér fyrir þessu, fyrst eg hafði þá enn ráðherrastörfin á hendi. En það lítur út fyrir, að það hafi verið áheit á nýju stjórnina að lofa henni að koma þessari stórmerkilegu umbót í framkvæmd, og ákvörðunin hafi ekki verið tekin um að láta það hlaupa af stokkunum fyr en það var alt gengið eftir óskum. Að vísu gat verið ástæða til þess hvort sem var að láta mig ekkert vita um þetta, áður en eg fór frá Höfn. Hr. Tulinius hélt eins og eg, að Sameinaða gufuskipafélagið mundi engan umboðsmann senda til þess að semja við alþingi í þetta sinn, en hefði það fengið að vita um Thoretilboðið gat hugsast, bæði að það gerði önnur boð og sendi mann til samninga. Enn fremur gat hugsast, að eg hefði leitað upplýsinga bæði um skipin, sem landssjóði eru boðin til kaups og um ýms önnur eigi alveg ómerkileg atriði, sem að máli þessu lúta, upplýsingar sem nú er ekki gott að fá í svip í svo mikilli fjarlægð — en eg vil ekki gera ráð fyrir, að hr. Tulinius hafi tekið neitt tillit til slíks, og þess vegna geri eg ráð fyrir,
að ákvörðunin um tilboðið hafi ekki verið tekin fyr en í öllu falli eftir að eg fór frá Höfn.
Hinn háttv. framsm. (B. Kr.) lagði mikla áherzlu á það, að félagsskapurinn við Thorefélagið mundi verða landinu arðvænlegur og útgerðin borga sig af þeirri ástæðu, að það gæti haft hönd í bagga með hvernig ferðunum er hagað og allar framkvæmdir félagsins svo að segja í sinni hendi.
En háttv. þm. ætti að vita, að það er sitt hvað að haga ferðunum með það eitt fyrir augum, að almenningi líki sem bezt, og að haga þessu þannig, að arðvænlegt sé fyrir útgerðina. Einmitt það, að landið ?: þingið setji áætlun skipanna með það eitt fyrir augum, að fullnægja sérstæðum hagsmunum hinna ýmsu landshluta, er vísasti vegurinn til þess, að ferðirnar beri sig ekki. Og hvað arðvænleik ráðstafananna snertir, höfum við dálitla reynslu, og hana ekki sem álitlegasta fyrir landssjóðinn. Það er »Vestu«útgerðin. Á því eina skipi tókst landssjóði að tapa 170—180 þús. kr. á þessu eina fjárhagstímabili, sem hún stóð yfir. Á þessari útgerð með svo miklu fleiri og sumpart lakari skipum, má búast við margfalt meiri tekjuhalla, sem tillagið, þessar 60 þús. kr., sem landssjóði er ætlað, hrykku lítt til að standast. Póstferðatillag Danmerkur er alveg óvíst að fáist til þessarar útgerðar. Á bréfum þeim, sem skrifuð hafa verið, er ekkert að byggja í þá átt. Þar var að eins að ræða um bráðabirgða samkomulag milli mín og þáverandi innanríkisráðgjafa, Sigurðar Berg, sem var vissum skilyrðum bundið, og ekki stendur lengur. Það fé er als ekki veitt Íslandi, heldur er þar um danskt póstfé að ræða, er Danir ráðstafa samkvæmt stöðulögunum frá
1871, eftir vild, ef ekki næst samkomulag við Íslands ráðgjafann.
Að láta löggjafarvaldið verja þessa Thore-útgerð gegn allri samkeppni með ívilnunum við það félag og íþyngja öðrum skipum, eins og flutnm. (B. K.) benti á sem óbrigðult ráð til gróða, er einhver ískyggilegasta einokunarstefna, sem hægt er að finna upp á. Það væri hin herfilegasta afturför að byrja nú á slíkri pólitík, sem ekki getur orðið til annars en ófrelsis og íþyngdar, sem gæti gert landinu og framförum þess óbætanlegt tjón; að leggja sérstakt lestagjald á vegna þessarar útgerðar, sem greiðist af öllum skipum nema Thoreskipunum eða þá endurgreiddist því aftur, væri alveg sama sem að leggja almennan vörutoll á landsmenn til ágóða fyrir einstaka menn, sem »aktíurnar« eiga með landssjóði í fyrirtækinu,
Viðvíkjandi ferðum til Hamborgar, sem flutnm. (B. K.) lagði svo mikla áherzlu á, skal eg geta þess, að það hefir einu sinni komið til orða, eftir frumkvæði Thomsens konsúls, að skipin færu stundum þangað eða til Lübeck, og út úr því var rannsakað, hve mikið flyttist af varningi frá Þýzkalandi hingað með póstskipunum. Það kom þá fram, að það var svo litið, að miklu ódýrara hefði verið að borga flutningsgjald undir það alt á járnbraut til Kaupmannahafnar, heldur en að senda gufuskip eftir því frá Höfn. Þess vegna var hætt við að gera ráðstafanir í þessu efni, enda skorti fjárveitingu í þessu skyni. En eg efast ekki um, að ef þinginu er það áhugamál, og hæfilegt fé er í boði, þá mundi Sameinaða gufuskipafélagið eins vel geta tekist slíkar ferðir á hendur eins og Thorefélagið. Í því skyni þarf ekki að fleygja hálfri miljón úr landssjóði, né stofna
honum í útgerðarbrall, sem eigi verður séð fyrir endann á.