18.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

10. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Ráðherra (H. H.):

Eg ímynda mér að menn geti komið sér saman um það, hve þýðingarmikið það er fyrir annan aðalatvinnuveg landsins, fiskiveiðarnar, að fá örugga og góða vátrygging fyrir skip og báta. Auðvitað hafa nokkur félög myndast í þessu skyni á síðari árum, en flest þessi félög eru ófullkomin, áhættan mikil, en trygging ekki sem skyldi.

Stjórnin hefir því tekið þetta mál til íhugunar, og fékk í fyrra menn nokkra til að ganga í nefnd til þess að athuga, hvernig koma mætti á samvinnu milli félaganna, aðallega í þeim tilgangi að auka trygginguna með því að dreifa áhættunni. Mennirnir voru þessir: Tryggvi Gunnarsson, Ágúst Flygenring, skrifstofustjóri Eggert Briem og G. Trolle sjóliðsforingi, sem kom til Íslands í fyrra og bauð stjórninni liðveizlu sína í þessu. Nefnd þessi kom síðan fram með álitsskjal, er þinginu verður gefinn kostur á að kynnast, og leggur hún það til, að stofnað verði samábyrgðarfélag fyrir íslenzk skip og báta, en landsjóður ábyrgist að nokkru leyti. Nefndin vill ekki að haggað sé við vátryggingarfélögum þeim, er þegar eru á fót komin á ýmsum stöðum, því að þeim sé kunnast um eigin hag og ástand, og af þeim kunnugleika og því eftirliti, er félagsmenn geti haft hver með öðrum sé góður stuðningur, — heldur skuli markmið hins nýja félags vera, að styrkja annars vegar hin félögin, með því að taka að sér endurtrygging að nokkru fyrir þau, og þannig takmarka áhættu þeirra, og hins vegar að takast á hendur vátrygging skipa og báta, er eigi geta fengið trygging í hinum félögunum.

Stjórnarráðið hefir að mestu leyti getað fallist á tillögur nefndarinnar, einnig að því leyti, að byggja skuli á sjálfstæði þeirra félaga, er þegar eru á legg komin, og hefir tekið upp í frumvarp þetta aðal ákvæðin úr nefndaruppkastinu um fyrirkomulag félagsins, en ætlast til að ýms nánari ákvæði, er í því eru, komi fram í reglugjörð félagsins. Það virðist hentugra að hafa þau þar, svo að eigi þurfi að leita löggjafarvaldsins til að fá þeim breytt eftir því sem þörf verður á. Upp í þetta frumvarp hefir stjórnin því aðallega tekið grundvallarreglurnar um starf félagsins og um ábyrgð landsjóðs, er farið er fram á að nemi 200,000 kr.; og því næst þau ákvæði, er löggjafarvaldið verður að krefjast að sett verði vegna landsjóðsábyrgðarinnar.

Í einstöku atriðum hefir þó ekki þótt fært að fylgja tillögum nefndarinnar. Þannig virðist ekki tiltækilegt að láta landsjóð, eins og nefndin stingur upp á, taka með fjárframlögum þátt í aukaiðgjöldum, er yrði að greiða fyrir endurtrygging í útlendum félögum, því að með slíku tillagi væri landsjóður að styrkja tiltölulega fremur vel efnaðan hluta þjóðarinnar, og það virðist yfirleitt eðlilegast, að eigendur borgi sjálfir þau iðgjöld, er þörf er á til að halda skipum þeirra og bátum í ábyrgð.

Stjórninni hefir því næst þótt ástæða til að gera stjórn félagsins óbrotnari, en nefndin hefir lagt til, meðan félagið hefir ekki náð sterkri fótfestu. Að því er sérstaklega snertir tillögur nefndarinnar um árlegar samkomur vátryggjenda, þá mundu þær koma aðallega vátryggendum í og í nánd við Reykjavík að notum, og gera þeim of hátt undir höfði að tiltölu í samanburði við aðra parta landsins, nema fulltrúum yrði greiddur ferðakostnaður og þeim með því gert hægra fyrir að koma á fundi. En þótt því beri ekki að neita, að slíkir fundir til að ræða mál félagsins væri gagnlegir, þykir þó hagfeldara að fresta ákvörðunum um slíkt, þangað til félaginu vex betur fiskur um hrygg, vegna þeirra talsverðu útgjalda, sem greiðsla ferðakostnaðar hlýtur að hafa í för með sér.

Loks virtist stjórninni, að tillag landsjóðs til stjórnarkostnaðar í félaginu yrði að takmarka svo, að það nemi ekki meiru en 5,000 kr. árlega í 5 ár.

Eins og eg sagði áðan, átti markmið félagsins að vera tvennskonar, annars vegar að samtengja og styrkja vátryggingarfélögin sem á stofn eru komin, með því að takast á hendur endurtrygging fyrir þau, og þannig minka áhættuna fyrir hvert þeirra um sig, og hinsvegar að hafa á hendi vátrygging fyrir skip þau og báta, er ekki eiga kost tryggingar í þeim félögum.

Það verður auðvitað að vera skilyrði fyrir endurtrygging af hálfu félagsins fyrir vátryggingarfélög þau, sem það ætlar að vera í samvinnu við, að þeim sé tryggilega fyrir komið, svo að vissa sé t. d. fyrir því, að það geti fengið inn aukaiðgjöld þau, er jafna yrði niður, þegar illa gengur. Skilyrði fyrir samvinnu verður því að vera, að stjórnarráðið hafi samþykt reglugjörðir hlutaðeigandi félaga, og að slíkt samþykki fáist eigi, nema félaginu sé eigi aðeins yfirleitt tryggilega fyrir komið, heldur bjóði það og vátryggjendum sanngjarna vátryggingarkosti, þannig, að t. d. veðhafar séu vissir um borgun enda þótt eigandi týndi rétti sínum til vátryggingarfjárins. Með því að gera slíkar kröfur til félaganna gæti hið nýja félag haft gagnleg áhrif yfirleitt á starfsemi þeirra og viðskiftalífið.

Það ætti að vera aðalreglan, að hið nýja félag tæki aðeins að sér beina vátrygging á þeim skipum og bátum, er eigi geta komist í héraðafélögin, sem til eru og það endurtryggir fyrir. Þessi starfsgrein þess getur eins fyrir það orðið æði viðfangsmikil, einkum að því er gufuskip snertir, og verður félagið þegar þeirra vegna að kosta endurtrygging í útlendum félögum á töluverðum hluta áhættunnar. Eg hefi ástæðu til að ætla, eftir því sem komið hefir í ljós við bráðabirgðamálaleitanir í því efni, að hægt verði fyrir félag með því fyrirkomulagi, sem ráðgert er í frumvarpi þessu, að komast í endurtryggingarsamninga við útlend félög með sanngjörnum kjörum. Það er vitaskuld, að þó að takmörk þau, er frumvarpið setur félaginu fyrir eigin áhættu þess, séu framtíðarinnar vegna eigi sett þrengri en gert er, þá verður félagið fyrst í stað að endurtryggja talsvert meir, en lögin gera því að skyldu, einkum af beinum ábyrgðum þess.

Samkvæmt tillögum nefndarinnar er eigi farið fram á neina skyldu til að vátryggja hjá samábyrgðarfélaginu, né neinn einkarétt fyrir það; það væri mjög viðsjárvert að takmarka frjálsa samkepni, þar sem um annan aðalatvinnuveg í landinu er að ræða, og fyrirmuna mönnum að vátryggja þar, er þeim þykir sér bezt henta. Af þessum ástæðum hefir heldur eigi þótt rétt að fylgja þeirri tillögu nefndarinnar, að skylt skuli að tryggja hjá hinu áformaða félagi skip þau og báta, er veðsett eru fyrir lánum úr fiskiveiðasjóði eða af opinberu fé. Ef önnur félög veita jafngóða trygging, sérstaklega fyrir veðhafa, virðist rétt að taka það gilt við veiting þeirra lána.

Það er talsverður vandi að gera úr garði frumvarp eins og þetta, og hefir skrifstofa stjórnarráðsins í Kaupmannahöfn mest að því unnið. Eg vona, að þingið taki frumvarpi þessu með sama huga og það er af sprottið, og vil mælast til, að hin háttv. deild setji nefnd í málið og greiði fyrir því sem bezt.