23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1754 í B-deild Alþingistíðinda. (2238)

111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu

Einar Jónsson:

Það er nú búið að ræða þetta mál svo mikið og svo rækilega, að það er ekki þörf að snúa sér frekar að einstökum atriðum, en þegar hefir verið gert. En eg hefi orðið þess var, að háttv. þm. hafa hallast mikið fremur að einstökum mönnum en málefninu sjálfu; mér hlýtur því, af sömu ástæðu, einnig að vera heimilt að fara út í slík atriði.

Fyrsta atr. er um Samein. gufuskipafél. og samgöngurnar. Háttv. frsm. meiri hlutans (B. Kr.) sagði í gær, að samgöngur þær, er Sam. félagið byði, væru verri nú en áður.

Eg get nú ekki skilið á hverju hinn háttv. þm. byggir þessi ummæli sín, því að það er þó vitanlegt, að ferðir þessa félags eru fleiri nú en undanfarið, 25 í stað 22. Auk þess gefur félagið kost á að Botnía komi í stað Lauru eða Vestu, sem álitin eru lökust af skipum hins Sameinaða, en Botnía hraðskreitt og í alla staði gott skip, og það sem mest er um vert, skip með kælirúmi.

Þetta virðist óneitanlega betra en verið hefir; það er því algerlega óréttmætt að kasta því fram, að samgöngurnar séu nú verri en áður.

Eg get nú búist við, að ýmsir h. þm., t. d. háttv. þm. Snæf. (S. G.), kalli þetta blinda ást á félaginu. En eg get lýst því yfir, að eg hefi ekki tekið neinu ástfóstri við Sam. fél. fremur en við Thorefélagið, jafnvel þótt eg sé mótfallinn því tilboði, er nú liggur fyrir. Þetta ástarhjal hins háttv. þm. Snæf. (S. G.) er því algerlega úr lausu lofti gripið og hlýtur að detta um sjálft sig.

Hinn háttv. 2. þm. Rvk. (M. B.) fór um það mörgum orðum í gær, að framkoma umboðsmanns Sameinaða félagsins væri alveg óforsvaranleg.

Háttv. framsögum. minni hl. (J. J.) hefir sýnt ljóslega fram á, hvernig þessu öllu er háttað; eg þarf því ekki að skýra það betur, en eg vil taka undir þau orð hins háttv. framsm. (J. J.) að ef fulltrúinn hefir ekki gert alt sem í hans valdi stóð í þessu efni, þá á nefndin sök á því en ekki hann. Og það var alveg rétt, sem h. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) sagði, að nefndin hefði kallað þennan mann einu sinni á fund sinn, og hefði látið í veðri vaka, að hún mundi boða hann á sinn fund síðar, ef þörf gerðist. En til þess kom þó aldrei, og þá var sannarlega eðlilegt, að maðurinn gerði ekki meira en hann gerði.

Þar sem hinu háttv. framsm. minni hl. (J. J.) fekk að heyra það í orðahnippingum, að hann hefði ekki verið sem bezt fyrirkallaður og því lítið starfað í nefndinni, þá þarf eg nú að vísu ekki að taka þar upp þykkju fyrir hans hönd, en mér finst skylt að taka það fram, að hann var alt af eins vel fyrirkallaður og unt var, enda er það mín sannfæring, að einmitt hann hafi mest gagn unnið í nefndinni. Má vera, að áður nefnd ummæli um h. framsögum. minni hl. (J. J.) séu sprottin af því, að hann stefndi í rétta átt, að hann hafði landssjóðs gagn fyrir augum, en fór í engu á bak við það sem rétt var.

Þá hafa fallið nokkur smá-hnífilyrði frá ýmsum háttv. þm. til hnjóðs Sameinaða félaginu t. d. þar sem h. framsögum. meiri hl. (B. Kr.) var að tala um stelsýki félagsins. Þótt h. þingmönnum kunni nú að þykja hér nokkuð djúpt tekið í árinni, þá leyfi eg mér að halda því fast fram, að eg hefi ekki farið með rangt mál í þessu efni. Ef sagt væri, að stolið hafi verið úr einhverju húsi — og enginn hefði gengið um það, annar en húsráðandi sjálfur, þá er þar með ótvírætt gefið í skyn, að hann sé valdur að þjófnaðinum.

Getur vel verið, að eitthvað sé hæft í þessum ummælum, mér er ókunnugt um það, en slík orð eru ekki til annars en að gera lítið úr manni eða félagi, sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér.

Undarlegast af öllu er þó það atriði, er hinn háttv. þm. Dal. (B. J.) mintist á áðan; hann sagði, að fyrirsögn frumv. væri ekki annað en skrifvilla. Mér þykir leitt, að hinn háttv. þm. er ekki viðstaddur hér í þingsalnum nú, að hann mætti heyra orð mín. Þar sem tekið er fram, að eigi að kaupa skip af Thorefélaginu, þá segir háttv. þm. að slíkt hafi engum komið til hugar! Um hvað er þá alt af verið að tala, bæði í gær og í dag?

Úr því að þessu er þannig háttað, þá vil eg gera það að tillögu minni, að umr. sé nú þegar lokið um þetta mál — þar sem verið er með það á prjónunum, sem ekki á þó að gera, sem ekki er annað en vitleysa!