23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1757 í B-deild Alþingistíðinda. (2239)
111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu
Framsögumaður meiri hlutans (Björn Kristjánsson):
Umræður eru nú orðnar nokkuð langar um þetta mál, en þó verð eg að segja nokkur orð enn, aðallega til að andmæla ýmsum rangfærslum háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.).
Ásamt öðrum afturgöngum hins hv. þm. var sú ein, að hann vissi ekki hvað meint væri með forréttindahlutum í þessu sambandi. Eg var þó búinn að skýra það atriði við framsögu þessa máls, og háttv. þm. Dal. (B. J.) tók það réttilega fram, að hér væri bygt á skýrum samningum. (Jón Ólafsson: Það er ekki samningur). Jú, Það er einmitt samningur, sem hér liggur fyrir, og skal eg með leyfi hæstv. forseta lesa upp kafla úr samgöngutilboði Thorefélagsins. Þá vona eg, að háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) sannfærist um, að eg fer með rétt mál — en hinn háttv. þm. vill víst ekki heyra neitt, sem satt er.
Kaflinn, sem eg nefndi, hljóðar svo:
»Með því að ætlast er til þess, að hlutabréf landssjóðs verði forréttinda-hlutabréf, er þar með dregið svo úr áhættunni, sem frekast má verða, því ekki má greiða hinum hluthöfunum nokkurn arð fyr en landssjóður hefir fengið 4% af fé því, sem hann leggur í fyrirtækið; og skyldi svo fara, að tap yrði á félaginu, verður engu eytt af fé landssjóðs, fyr en búið er að eyða þeim 300,000 kr., sem hinir hluthafarnir leggja í félagið«.
Skilur hinn háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) nú? (Jón Ólafsson: Þetta er »prokura« en ekki samningur). Þetta er samningur, sem er undirskrifaður af félaginu. Þar við bætist svo, að eg bauð þm. í gær að koma fram með breyt.till. á þessu atriði; það er því alsendis óþarft að gera sér neitt far
um að snúa út úr þessu lengur. — Þá tilfærði hinn háttv. sami þm. það sem sönnur á sitt mál, að Grundejerbanken hefði sýnt glæsilegan »status«, en þó farið á höfuðið eftir viku. Hinn háttv. þm. vill þá víst ráða öllum, sem fást við verzlun í heiminum til að hætta allri verzlun og verzlunarfélagsskap, úr því að ein stofnun hefir gefið upp rangar skýrslur. Er ekki svo?
Þá lagði sami háttv. þm. ásamt fleirum mikla áherzlu á það, að eg hefði samið ferðaáætlun. En það var ekki eg einn, sem samdi þessa áætlun, heldur öll nefndin í félagi, og gerði hún það til þess að sjá, hvernig ferðirnar gætu litið út eftir Thoretilboðinu. Það var als ekki aðal-augnamiðið að slá því föstu, hvernig ferðirnar ættu að vera ákveðnar í fullnaðaráætlun, og ekki til þess ætlast, að þetta áætlunaruppkast komi nú fyrir þing, heldur átti hún að eins að vera til þess, að nefndin gæti glöggvað sig á notagildi tilboðsins. Og þó að áætlun þessi hefði komið fyrir þingið, þá verða menn vel að gæta að því, að nefndin hafði ekki gert neina áætlun um aukaskip, sem á að fara 5 ferðir; hafði nefndin það einmitt bak við eyrað, að það skyldi notast í byrjun til ferðanna milli Hamborgar og Íslands, með því að nægilegt gæti verið í bráðina að hafa til þess skip, er færi 3—5 ferðir. Þetta vissi háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) ekki og gat honum því yfirsést þar.
Annars hafa hinar mörgu endurtekningar hins háttv. þm. verið marghraktar. En þar sem hann gat þess, að 20 ára gömul skip eða skipsvélar svari ekki til kröfu nútímans, þá er auðvitað hægt að fallast á það, að betra væri að skipin væru ný. En heldur hinn háttv. þm., að Sameinaða gufuskipafélagið mundi bjóða kolasparari skip, en Thorefélagið gerir? (Jón Ólafsson: Eg er ekki að tala um að kaupa skip). Hver borgar kolaeyðslu »Vestu« og »Ceres«? Það gerir Ísland; það borgar það sem þau skip eyða meira af kolum en »Sterling«. Að öðrum kosti gætu ferðir hins Sameinaða hér við land ekki borgað sig.
Það er alveg rétt, að bezt væri að eiga ný skip, en þá verður fjárframlagið að vera meira. Íslendingar hafa keypt gömul ensk fiskveiðaskip (kuttera) fyrir 10—12 þús. kr., af því að þeir hafa ekki ráð á að borga 30 þús., sem þau kosta ný.
Landið verður að fara alveg eins að eins og einstaklingurinn, það verður einnig að sníða sér stakk eftir vexti.
Þá vil eg leyfa mér að svara nokkrum orðum háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.); hann gat þess, að við hefðum ásakað sig fyrir að hafa ekki hugsað rækilega um tilboð um skipaferðir. Mér skildist á orðum hins háttv. þm., að hann hefði seinast þegar hann var á ferð í Danmörku, fengið tilboð frá Sameinaða félaginu. (Hannes Hafstein: Seinustu áætlun). En það sýnir, að hann hefir sáralítið hugsað um það mál fyrir þing, ekki fyr en á síðasta augnabliki. Og auðvitað hefir hann ekki gert sér mikið ómak fyrir að búa til keppinaut á móti því Sameinaða. Undanfarandi reynsla gefur ekki tilefni til að óttast það.
Hinn háttv. þm. hefir ekki getið um, að hann hafi boðið Thorefélaginu að gera tilboð, þrátt fyrir það, að hann hefir lýst yfir því, að Tulinius væri mjög lipur maður — samt hefir hann ekki getað beðið hann að gera tilboð (Hannes Hafstein: Eg sagðist hafa gert það!) Það hefir víst legið í því, hvernig meðferð Tulinius hafði sætt áður af þingi og stjórn. En það sýnir ótvíræðlega lipurð Tuliniusar, að hann gat reynst lipur, þrátt fyrir þá meðferð.
Hinn háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) tók það einnig fram, að réttast væri að stofna innlent hlutafélag, en hinn hv. þm. veit, að ef slíku fyrirtæki verður frestað, þangað til landsmenn hafa efni á því, þá er það mál úr sögunni um langan, langan aldur.
Það hefir verið reynt að fá 60 þús. til gufubátskaupa, en það hefir enn ekki tekist. Og þegar það hefir reynst jafnörðugt, hvernig ættu Íslendingar þá að leggja fram 850 þús. kr. til skipaferða eða meira?
Háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) var að tala um það í gær, að vér sem fylgdum þessu máli vildum mynda »monopol« og jafnvel stuðla til þess, að einstakir menn væru skattlagðir til þess að það gæti haldist við. Það er nú sannarlega undarlegt að heyra þetta frá þessum þm., sem einmitt sjálfur stofnaði hér »monopol« með ritsímalögunum, og þar er líka gert ráð fyrir, að einstakir menn verði skattlagðir. Þannig verður ritsímafélagið í Reykjavík, sem er prívatfélag, að borga 6 kr. skatt til landssjóðs af hverju talsímasambandi í bænum. Er það ekki »monopol«? Hvers vegna hefir þm. á móti því, að myndað sé »monopol« með samgöngur? Hér er nú auðvitað ekki verið að gera ráð fyrir nokkurri einokun eða »monopol«, heldur var að eins bent á það í gær, að löggjafarvaldið gæti stutt að því, að skipin hefðu nægilegan flutning og gæti stutt félagið móti strákslegri samkepni, ef til kæmi.
Í einni af ræðum sínum tók sami þm. það fram, að eg hefði sagt, að hann hefði brotið lög seinasta alþingis. Það er rétt, eg sagði að hann hefði orðið að brjóta fjárlögin, vegna þess að það Sameinaða hefði ekki staðið við loforð sín. Til þess að sanna, að þetta sé ekkert skrök, sem eg fer með, vil eg með leyfi hæstv. forseta leyfa mér að lesa upp úr fjárlögunum fyrir 1907, það sem að þessu lítur. Þar stendur:
»Stjórninni veitist heimild til þess að gera samning um gufuskipaferðirnar, er gildi alt að 8 árum, að því tilskildu: — — — — — — —
Að tvö af millilandaskipunum að minsta kosti séu ný, fullnægi kröfum tímans sem farþegaskip, hafi stór kælirúm fyrir flutning á kjöti, fiski og smjöri og séu miklum mun stærri og auk þess hraðskreiðari en »Vesta« og »Laura« «.
Eg veit nú ekki til að háttv. þm. hafi samið svo um sem hér er áskilið. (Hannes Hafstein: Gæti svarað þessu ef eg væri ekki »dauður«). Eg sagði auðvitað í gær, að hann hefði ekki getað annað en brotið fjárlögin í þessu efni, af því hið Sameinaða hefði ekki haldið orð sín við hann. Og annaðhvort hlýtur hið Sameinaða að hafa svikið hann eða þingið. eða fyrverandi ráðherra hefir skrökvað að þinginu, boðið því í nafni félagsins betri boð en félagið sjálft hafði samþykt, til þess í svipinn að geta bægt Thorefélagstilboðinu frá. Hvorttveggja getur verið jafnlíklegt.
Eg vil að endingu taka fram, að þrátt fyrir allar umr. um þetta mál, hefir enginn andmælandi svarað niðurlagsákvæðunum í fyrstu ræðu minni, þeim:
1. að engin önnur leið er til þess að beina samgöngunum í þá átt, sem haganlegast og arðvænlegast er fyrir Ísland.
2. að með engu öðru móti er nú leið til þess að tryggja landinu kælirúm í millilandaskipunum.
3. að engin önnur leið er til þess að tryggja landið fyrir útlendu einveldi (monopol) yfir fragt fyrir vörur, sem flytjast til Íslands og frá því.
4. að engin önnur leið er til þess að gera stórkaupmönnum mögulegt að setja sig niður hér á landi.
5. að engin önnur leið er til þess að veikja lífsábyrgðarfélög hins útlenda valds hér á landi.
6. að engin önnur leið er til þess að spara Íslandi minst ½ miljón kr. óbeinan skatt af þýzkri verzlun, sem nú gengur til Dana og
7. að eini vegurinn til að finna lykilinn að sjálfstæði landsins er að Ísland fái yfirráðin yfir samgöngunum.