23.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (2240)
111. mál, Landssjóðshluttaka í Thorefélaginu
Hannes Hafstein:
Háttv. 1. þm. G. K. (Bj. Kr.) gat þess ekki að jafnframt því, sem byggja átti 2 ný skip, var það gert að skilyrði frá þingsins hálfu að fargjöld og farmgjöld mættu ekki hækka frá því sem nú er; þetta kvaðst Sameinaða félagið aldrei hafa samþykt, að því er hin nýju skip snerti, og það er rétt, að það stóð ekkert um það í tilboðinu. Þegar til samninganna kom sagði félagsstjórnin, að það gæti ekki borið sig að byggja tvö skip, svo vönduð og dýr, eins og þessi áttu að vera fyrir 89 hundruð þúsunda hvort, ef farm- eða fargjöld hækkuðu ekki. Þegar af þeirri ástæðu kváðust þeir ekki geta gengið að skilyrðum þingsins um bygging hinna nýju skipa.