06.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í B-deild Alþingistíðinda. (2315)

113. mál, skipun prestakalla

Jón Jónsson S.-Múl.:

Háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) vildi halda því fram, að meginregla laganna væri ekki komin í framkvæmd. Þetta var bæði mér og öðrum ljóst og þurfti því ekki að halda langa ræðu um það. Sami háttv. þm. sagði sömuleiðis, að hann vonaðist eftir að annað skipulag yrði komið á kirkjulöggjöf okkar, áður en lög þau, er nú gilda geta komist í framkvæmd. Mér finst vera dálítil mótsögn í þessu. Hvers vegna mega ekki þessar breytingar bíða eftir þeirri aðalbreyting, sem þm. gerir ráð fyrir? Ef þessi prestaþörf alþýðunnar er svo rík og mikil, eins og háttv. þm. virtist álíta, er þá ekki rétt að fólkið borgi þeim sjálft? Eins og nú stendur, borga söfnuðirnir að eins ? hluta af tekjum prestanna. Eg lít svo á, að það sé als ekki ofraun fyrir söfnuðinn að vitja prests. Eg skil ekki í öðru en að menn geti haft opin augun fyrir því, að á meðan prestarnir eru meira en helmingi fleiri en læknarnir, þá sé þó ólíkt erfiðara að ná í lækni, þrátt fyrir það þó oft og einatt sé um lífið að tefla, ef ekki er hægt að ná í lækni; en það verður ekki sagt um prestsverk yfir höfuð, að þau séu þannig vaxin, að þau geti ekki beðið lítinn tíma. Eg get heldur ekki gert ráð fyrir, að nokkur prestur hangi í embætti lengur en það, að hann geti í góðu veðri farið prestakallið á enda í hægðum sínum. — Eg veit, eins og eg hefi áður tekið fram — að eg lít öðru vísi á þetta mál en margir aðrir og kemur það af því, að eg er á gagnstæðri skoðun í því sem er grundvöllurinn í þessu máli.

Háttv. þm. brá okkur, sem vorum á síðasta þingi um það, að við hefðum stutt þjóðkirkjuna í staðinn fyrir fríkirkju. Eg skal viðurkenna, að það er nokkuð satt í þessu. Þó verð eg að segja það, að ef bent hefði verið á einhverja tiltækilega leið í þá átt, þá hefði eg stutt hana. En eg vil benda hinum háttv. þingm. á það, að það er dálítið undarlegt af honum að vera að bregða okkur um að við höfum stutt þjóðkirkjuna, — því hvað gerir hann? — ekki styður hann fríkirkjuna með þessu frumv. því eru þeir háttv. flutnm. þessa frumv. enn þá að byrja á öfugum enda? Við eigum því ekkert ámæli skilið, þar sem háttv. flutnm. er sjálfur að styðja þjóðkirkjuna, enda þótt hann þykist vera fríkirkjumaður.