29.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)
114. mál, vélgæsla á gufuskipum
Björn Kristjánsson:
Sökum þess að flutnm. (M. Bl.) er veikur, leyfi eg mér að segja fáein orð. Frumv. þetta gerir ákvæði um, hvaða kunnáttu þeir menn skuli hafa, er fara með vélar á gufuskipum.
Mönnum hlýtur að vera ljóst, hve mikil nauðsyn er á slíkum reglum. En þar sem það nú er vitanlegt, að engin þekking er hér í þinginu í slíkum efnum, býst eg ekki við, að þetta mál geti nú orðið samþ. og að ekki liggi annað fyrir en að fela stjórninni að undirbúa það mál til næsta þings.
Eg vil þó leyfa mér að stinga upp á því, að vísa málinu til verzlunar- og atvinnumálanefndarinnar.