21.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (232)
10. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip
Sigurður Stefánsson:
Af því að háttv. 3. kgk. þm., sem er framsögum. nefndarinnar, er ekki viðstaddur, ætla eg að segja nokkur orð um þetta mál.
Neðri deild hefir breytt frv. nokkuð, og eg skal geta þess, að þær breytingar hafa verið gerðar í samráði við nefndina hér í deildinni. Því get eg lýst því yfir fyrir hönd nefndarinnar, að hún ræður til að samþykkja frv., eins og það nú er orðið.
Aðalbreytingin, sem gerð hefir verið á frv., er í því falin, að sá hluti skipsverðsins, sem verður að vera í sjálfsábyrgð, er færður niður í l/5 af tryggingarhæfu verði skipsins. Þessi tilfærsla getur að vísu haft þá þýðingu, að skipseigendur verði ekki eins varkárir, þegar sjálfsábyrgðin er minni. En nefndin álítur þetta ekki svo varhugavert, að hún sjái ástæðu til að breyta því aftur.
Önnur breytingin er sú, að vextir, sem félagið á að greiða landsjóði, ef hann hefir orðið að hlaupa undir bagga með því, hafa verið hækkaðir úr 4% í 4½%.
Þá er breytingin við 7. gr. Þar var ákveðið, að samábyrgðin væri aldrei skyld að greiða meira en helming tryggingarupphæðar, þegar skipstjóri væri valdur að tjóninu af ásettu ráði eða fyrir vítavert hirðuleysi, þó að þá fáist ekki borgað lán af almannafé. Neðri deild hefir fært þetta hámark úr ½% í 3/5% tryggingarupphæðar. Þessu getur nefndin líka verið samþykk. Það er í samræmi við tilsvarandi ákvæði í brunabótafélögunum.
Þá hefir neðri deild gert nokkuð víðtækari ákvæði 8. gr. um það, hverjir skaðar það eru, sem félagið bætir. Þá breytingu felst nefndin einnig á.
Þetta eru helztu breytingarnar, sem orðið hafa á frv. síðan það fór héðan. Og nefndin ræður til að samþykkja frv. eins og það kemur nú fyrir.