27.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (2321)

115. mál, almenn viðskiptalög

Jón Magnússon:

Þegar háttv. Ed. var að skora á stjórnina að endurskoða verzlunarlöggjöf vora, þá hefir hún víst ekki vitað um það, hvert hún ætti að snúa sér og að þetta mál var á ferðinni. Eg efast ekki um, að lagabálkur þessi, sem hér liggur fyrir, sé vel gerður, en þó get eg ekki annað en óskað þess, að frumv. verði ekki afgreitt á þessu þingi sem lög frá því. Eg álít að það sé of fljótt undið að málinu, og að menn hefðu gott af því að fá tækifæri til að athuga það dálítið. Þótt lagabálkur þessi sé góður þá álít eg samt að það sé mjög stórt spursmál um það, hvort ekki þarf að athuga hann betur, en nefndin hefir átt kost á.

Eg hefi ekkert á móti því, að málið sé látið ganga áfram á þessu þingi, samt með því skilyrði, að það verði ekki afgreitt sem lög frá því í þetta sinn. Málið mundi vekja eftirtekt á þann hátt og máske skýrast dálítið undir umræðunum, en að mínu áliti er það fleiri ára verk að athuga það svo vel sé.