24.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)
119. mál, mentaskólamálefni
Flutningsmaður (Bjarni Jónsson):
Eg sagði aldrei, að ekki mætti taka eftir öðrum þjóðum, ef það á við hér, og vér getum haft gagn af því. Mér datt heldur ekki í hug að lasta þá menn, sem unnið hafa að reglugerð skólans, hefi ekki heldur haft nein hörð orð um þá, en eg tel mér heimilt að hafa hörð orð um skoðanir og tel engan þurfa að þykkjast við.