27.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1924 í B-deild Alþingistíðinda. (2369)

83. mál, verslunarlöggjöf

Björn Kristjánsson:

Úr því að framsm. er ekki viðstaddur, þá skal eg leyfa mér að gefa nokkrar skýringar á málinu. Nefndin hefir íhugað það og felst á stefnu þess með nokkrum breytingartill.; hún hefir lagt til að fella burt orðið »hérlendra«, með því að nefndin vildi láta þetta ákvæði ná til allra kaupmanna yfir höfuð.

Í öðru lagi hefir nefndin bætt við því ákvæði, að tillagan nái einnig til þess að athuga stofnun og starfsemi hlutafélaga. Það er kunnugt, að slík félög eru nú rekin ýmislega, og ekkert eftirlit með, hvort stofnun þeirra er lögum samkvæm eða starfsemi þeirra rekin á lögmætan hátt.

Eg vona, að háttv. deild fallist á breyt.till. og háttv. Ed. líka, þegar þangað kemur.