25.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1925 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)

121. mál, vátrygging gegn slysum o. fl.

Flutningsmaður (Magnús Blöndahl):

Þingsályktunartillaga þessi, sem eg ásamt fleirum er flutningsmaður að, fer fram á að skora á stjórnina, að undirbúa og leggja fyrir næsta alþingi frv. til laga um vátrygging gegn slysum fyrir verkamenn og frumv. til laga um almenn sjúkrasjóðslög. Vér höfum ekki enn þá nein lög hér á landi um þetta efni, en brýn nauðsyn er þó á, að brátt sé hafist handa og bætt úr þeirri vöntun. Eg vona líka, að allir muni verða mér sammála í því að það sé sárt að sjá marga verkamenn, sem unnið hafa baki brotnu, vel og dyggilega, fara skyndilega á vonarvöl, ef eitthvert óhapp ber að höndum, og því meir sem vélar og margbrotnari iðnaður fer að tíðkast hér, því fremur má búast við, að slík óhöpp og slysfarir fari vaxandi. Eg skal eigi fjölyrða um þetta mál, því að það mælir sjálft með sér. Vona að háttv. deild taki því vel.