05.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1933 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)
123. mál, Guðbrandsbiblía
Jón Ólafsson:
Út af ummælum h. umboðsmanns ráðherra (Kl. J.) um »vindikations«reglur í enskum lögum, skal eg leyfa mér að geta þess, að samkvæmt enskri löggjöf er »vindikations«rétturinn takmarkalaus. Réttur hlutaðeigandi mundi því geta sótt að lögum þann sem hefði biblíuna með höndum, þótt hann hefði keypt hana í góðri trú.