05.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (2381)

123. mál, Guðbrandsbiblía

Jón Magnússon:

Fulltrúa ráðherrans (Kl. J.) þótti ógerlegt að greiða atkvæði með þessari tillögu, og eg segi að fyrir mína persónu ætla eg fúslega að greiða atkv. gegn henni, því mér finst að með samþykt hennar sé verið að gabba bæði þing og þjóð, og á þann hátt er mönnum bægt frá að snúa sér beint til stjórnarráðsins, sem þó eðlilegast er. Eg veit ekki, hvað flutnm. (J. Þ.) hefir verið að hugsa, er hann fór að koma fram með þessa tillögu. Hún er svo innihaldsrýr, að mig stórfurðar á því, að hann skyldi láta slíkt koma inn á alþingi. Það virðist vera kominn tími til að setja eftirlitsmenn, er væri falið á hendur að hafa gætur á, að alskonar meiningaleysu sé ekki hrúgað inn á þingið, að eins til að tefja tímann.