05.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1940 í B-deild Alþingistíðinda. (2386)
125. mál, sjómenska á þilskipum
Flutningsmaður (Pétur Jónsson):
Nefndin, sem kosin var til að athuga fiskiveiðamálin, er svo skipuð, að í henni situr enginn sérfróður maður í þeim efnum, ekki einu sinni neinn, sem um sjávarútveg hafi sýslað að verulegum mun. Eigi að síður höfum við tekið ýms atriði málsins til íhugunar og leyft okkur að leggja fyrir deildina till. þá til þingsályktunar, sem hér liggur fyrir. Ástæðan fyrir þessu er sú, að víða hafa komið fram kvartanir um, að fiskiveiðalöggjöf vorri væri mjög ábótavant og sú skoðun er víst almenn, að sem fyrst þurfi að ráða bót á slíkum vandkvæðum, ekki sízt að því er snertir sambandið milli háseta og útvegsmanna. Farmannalögin frá 22. marz 1890 eru ekkert annað en brot úr dönskum lögum og þýdd á íslenzku. Lög þessi, farmannalögin, áttu líka í upphafi að eins að ná til siglinga út af fyrir sig en ekki til fiskiveiða. Þar á móti hefir þó heimfærsla til þessara laga oft átt sér stað í fiskiveiðamálum. En slíkt getur oft verið óheppilegt og einkar ósanngjarnt sérstaklega gagnvart útgerðarmönnum. Það er því full ástæða til, að löggjafarvaldið komi á heppilegri ákvæðum um þetta efni og yrði það báðum málsaðilum, útgerðarmönnum og sjómönnum til mikilla hagsmuna. Nefndin hefir hugsað, að heppilegast væri, að mál þetta væri undirbúið af stjórninni, einkum þar sem hún í stjórnarráðinu hefir færum mönnum á að skipa og kunnugum þessu máli. Þeir geta líka borið málið undir félög útgerðarmanna og háseta hér í grend og látið hvorn málsaðilann um sig gera athugasemdir um tillögur stjórnarinnar. Mætti þá ætla, að hagsmunir beggja málsaðila verði þá hæfilega teknir til greina. Eg vona, að menn hiki ekki við að greiða tillögu þessari atkvæði sín. Það eru eins og bent hefir verið á, engir erfiðleikar fyrir stjórnina að taka málið fyrir.