20.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (2391)

127. mál, lending í Bolungarvík

Flutningsmaður (Skúli Thoroddsen):

Eg get ekki séð neina þörf á því, að samþykt sé rökstudd dagskrá um þetta mál. Ef háttv. þingdeild samþykkir rökstudda dagskrá, þá er tilgangurinn að vísu samur, sem ef þingsályktunin er samþykt, að skora á stjórnina, að láta framkvæma verkið, en mér virðist samþyktar þingsályktunartillögur þó vera enn áhrifameiri, og hvað þau mál snertir, sem hinn háttv. 2. þm. Húnv. (B. S.) mintist á, þá stóð nokkuð sérstaklega á, að því er sum þeirra snerti, þar sem sumt af því, sem skoða átti, hafði þegar verið skoðað.

Þar sem Bolvíkingum er áhugamál, að skoðunin fari sem fyrst fram, þá vil eg, að stjórnin líti svo á, ef þingsál. er samþykt, sem það sé sérstök ósk frá þinginu í þá átt, að skoðunin sé framkvæmd sem bráðlegast, enda margt, sem mælir með því, að verk þetta sé framkvæmt, sem fyrst, því hér á í hlut stærsta veiðistöð landsins, og umbót á lendingu þessari hefir þýðingu eigi að eins fyrir hlutaðeigandi hérað, heldur og fyrir landið í heild sinni, eins og eg drap lauslega á í fyrri ræðu minni.