15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (2394)

128. mál, bréfhirðing á Dynjanda

Ráðherrann (H. H.):

Eg get látið þessa tillögu liggja á milli hluta, það kemur ekki til minna kasta að framkvæma hana. En eg get þó eigi bundist þess, að taka fram, að mér finst óþarfi að gera þingsályktun um önnur eins smáatriði eins og þetta, meðan alls ekkert liggur fyrir, er sýni, að landsstjórnin hafi á móti þessu eða ætli sér annað. Það getur vel verið, að póststjórnin ætli sér einmitt að gera þessar ráðstafanir, og virðist þá réttast fyrir háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), að grenslast eftir því fyrst, og koma svo fram með málaleitunina við stjórnarráðið, ef þarf. Ef það hefir engan árangur, þá er fyrst ástæða til þess að fara til þingsins; en með því að ekki verður til þess ætlast, að þingm. séu svo kunnugir staðháttum, að þeir geti þegar vitað, hverjar ástæður eru til þess, að slíkar tillögur nái fram að ganga, þá ætti að setja nefnd í málið. Eg vil því spyrja hinn háttv. þingm. N.-Ísf. (Sk. Th.), hvort honum lítist ekki heldur að fara þennan veg, sem eg benti á.

Mig minnir annars, að bréfhirðing hafi verið á Dynjanda í Grunnavíkurhreppi og aukapóstur gengið að Furufirði, eins og hér er farið fram á. — Hafi því verið breytt, þá hafa eflaust legið til þess ástæður, sem vert væri að vita um, áður en ályktun er gerð.