16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1946 í B-deild Alþingistíðinda. (2395)

128. mál, bréfhirðing á Dynjanda

Flutningsmaður (Skúli Thoroddsen):

Eg skal lýsa því yfir, að eg finn enga tilhneigingu hjá mér til þess að taka aftur þessa tillögu. Og ummæli hæstv. ráðherra sýna, að það er sannarlega óheppilegt, að ráðherrar sitji lengi í sessi, ef þeir fá svo einstrengingslegar skoðanir, sem ummæli hans bentu til. Eg mótmæli því, að þingið megi ekki taka ályktun um þetta mál; það er beint skylda þingsins að bera fram vilja þjóðarinnar, þótt um verksvið umboðsvaldsins ræði, er þurfa þykir, ekki sízt er um störf póststjórnarinnar ræðir.

Annars man eg ekki betur, en að eg hafi einhverntíma nefnt svipað mál við póstmeistara, og hann vísað mér til þingsins, enda ofur-einfalt fyrir hvern þingmann að greiða atkvæði í þessu máli, eftir að hafa gert sér ljóst, hvaða vegalengdir hér er um að ræða, og verða við óskum hlutaðeigandi héraðsbúa. Það er siðferðisleg skylda þingsins að synja ekki tillögunni, því að menn, sem búa á jafn afskektum stöðum, sem Hornstrandir eru, eiga ekki síður en aðrir rétt á að fá að vita, hvað gerist í landinu og í umheiminum.

Eg vona því, að deildin samþykki tillöguna og sýni með því, að aðfinsla hæstv. ráðherra sé hrein og bein skriffinska.