15.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)
128. mál, bréfhirðing á Dynjanda
Flutningsmaður (Skúli Thoroddsen):
Eg er þakklátur háttv. 1. þm. Rvík. (J. Þ.) fyrir undirtektir hans í þessu máli, nema hvað hinar málfræðislegu athugasemdir hans snertir, því að till. er orðuð, eins og alment tíðkast þar í bygðarlaginu.
Hæstv. ráðherra (H. H.) var óþarft að bera mér á brýn hita í þessu máli, því að sjálfur hefir hann tekið þessari meinlausu þingsályktunartillögu með mestu ákefð, enda má honum vera það kunnugt, að eg er því óvanur að dylja hann skoðana minna, að því er til ýmsra starfa hans kemur, sem eigi verður komist hjá að geta að einhverju leyti.