22.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1959 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

132. mál, fiskiveiðamál

Flutningsmaður (Jón Þorkelsson):

Það þarf ekki að fjölyrða um þetta mál. Það er víst öllum kunnugt í hvert horf fiskiveiðar okkar nú eru komnar. Áður fyr gengu, eins og mönnum er kunnugt, róðrarbátar úr hverri vör og vogi, en nú er varla nokkur slík fleyta lengur til og þær, sem til eru, fúna nú í hrófum. Að þetta er komið svo, stafar að líkindum nokkuð af því, að róðrarbátarnir hafa ekki nægilega fullnægt kröfum þeim, er gera varð til þeirra. Menn gátu á þeim ekki sótt til fiskjar nógu langt á vastir út. Um eða skömmu fyrir 1870 tóku menn að gefa gætur að því, að þilskip mundu hentugri til fiskiveiða, og að þau mundu geta komið atvinnuvegi þessum fram stórum fetum til framfara. Hugmynd þessi ruddi sér fljótt til rúms og menn keyptu fjölda skipa, og um tíma þótti nálega enginn maður með mönnum, ef hann hélt ekki úti þilskipi til fiskiveiða. Á hinn bóginn vantaði þó nægilega samvinnu og samkomulag, bæði á milli útgerðarmannanna sjálfra og á milli útgerðarmanna og háseta, og um lítinn eða engan félagsskap að tala þeirra á milli.

Afleiðingarnar af öllu þessu hafa eins og menn vita orðið þær, að sjávarútvegurinn er nú svo að segja kominn í kaldakol, og það lítið sem eftir er, er komið á hendur einstakra útlendra auðmanna eða félaga. Því að eins og margir vita hafa nú eigi allfáir menn orðið að láta skip sín af hendi við þá, er hafa lánað þeim vörur til þess að geta annast um útgerð skipanna, og hjá sumum hverjum hafa skipin ekki hrokkið fyrir útgerðarskuldinni.

Fiskiveiðarnar eru — það vita allir — eitt af lífsskilyrðunum fyrir landið í heild sinni, og þá ekki sízt fyrir þennan bæ. Það má með fullum rétti segja, að hagur hans standi og falli með fiskiveiðunum. Eins og nú er ástatt eru það nú á þessu ári einungis örfáir menn, er séð hafa sér fært að halda úti þilskipum til fiskiveiða. — Málefni þessu er því komið í alvarlegt og ískyggilegt horf. Þingið þarf að vinda bráðan bug hér að, og reyna á einhvern hátt að sjá ráð til þess, að í þessi mikli atvinnuvegur mætti ná viði rétting þeirri, sem verða má.

Eg hef það frá gætnum og reyndum mönnum í þessari grein, að hyggilegt mundi vera, að menn rækju atvinnuveg þennan í félagsskap, er næði yfir alt landið, því þá yrði allra hagur hvers einstaks hagur. Gamla sleifarafélagið getur ekki lengur gengið. Hásetarnir hafa pressað sem hæst kaup út úr útgerðarmönnunum, þangað til alt sprakk. En um sameiginlega hagsmuni beggja í einu og sameiningu sýnist minna hafa verið hugsað. Mál þetta er í fæstum orðum sagt lífsnauðsyn als landsins í heild sinni, enda þótt að við, sem eigum heima við sjávarsíðuna finnum mest til þess. Eg vil því alvarlega ráða til þess, að þingið skipi 5 manna nefnd, til þess að finna einhver bjargráð við þessum mikilsverða atvinnuvegi.