23.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)
133. mál, peningavandræði
Flutningsmaður (Magnús Blöndahl):
Eg get verið stuttorður um þetta mál nú, því að allir munu vera sammála um það, að eitthvað þarf að gera til þess að bæta úr þeim almennu peningavandræðum landsmanna. Um hitt geta verið skiftar skoðanir, hverja leiðina á að fara, hvernig með öðrum orðum eigi að ráða fram úr því vandamáli.
Eg vil því að eins stinga upp á, að hin háttv. deild skipi 5 manna nefnd, til að íhuga málið.