07.05.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (2422)

134. mál, milliþinganefnd í bankamálum

Framsögumaður (Magnús Blöndahl):

Peningamálanefndin hefir lokið störfum sínum og gefið háttv. deild skýrslu um starf sitt, sem prentað er í nefndarálitinu.

Í nefndarálitinu er það tekið fram, hver frumvörp hafa komið frá nefndinni, og vænti eg, að þau komist flest greiðlega gegnum þingið.

Eins og kunnugt er, þá er eitt af frumv. þessum nú fyrir háttv. Ed., en ekki er hægt að spá neinu um það, hvernig um það fer. En ef það skyldi verða ofan á, að það ekki yrði samþykt, þá er það vitanlegt, að milliþinganefndarskipun sú, er vér höfum lagt til, að skipuð yrði, hefir minni þýðingu en annars, en hvað sem því líður, þá leyfir nefndin sér að halda þeirri tillögu sinni fast fram.

Eg skal svo ekki fjölyrða frekara um þetta mál, en vonast til þess, að deildin taki tillögu þessari vel.