15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)

Umræður um kjörbréfin

Kristinn Daníelsson:

Mér finst það fljótfærnislegt af þinginu að ganga nú þegar til atkvæða um þessa kosningu, og þótt eg ekki mótmæli gerðum kjördeildarinnar, fyndist mér réttast, að úrskurði um kosninguna væri frestað, og málið fengið til meðferðar nefnd þeirri, er kjósa ber samkv. 3. gr. þingskapanna.