15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)

Umræður um kjörbréfin

Stefán Stefánsson 6. kgk. þm:

Mér er ekki ljóst hvað þingið vinnur við það, að kjósa nefnd í málið. Þegar hún hefir athugað vafa-seðla þá sem hér er um að ræða verða þeir engu að síður að ganga meðal allra þingmanna til athugunar svo þeir geti greitt atkvæði um gildi þeirra. Þessi athugun getur farið fram nú þegar og hvaða þýðingu hefir þá, að vera að fresta þessu og láta þingmanninn bíða réttlausan á meðan?