15.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (2485)
Umræður um kjörbréfin
Framsögumaður 3. deildar (Jón Ólafsson):
Það hefir ekkert verið að athuga við kjörbréf þau, sem deildin hefir haft til rannsóknar, annað en ein kæra yfir kosningu þingm. Húnvetninga. Kæran er löng og má segja efni hennar í stuttu máli. Hún er bygð á því að í einum hreppi, Engihlíðarhreppi, hafði ákvæðunum um frágang á atkvæðakössunum ekki verið fylgt nákvæmlega. Pokinn um atkvæðakassann og umslag, sem lykillinn að atkvæðakassanum var látinn í, voru að eins innsigluð með innsigli annars kjörstjórans, en það hefir verið upplýst, að þetta kom af því, að aðrir málsaðilar höfðu engin innsigli. Þetta sést á vottorði frá umboðsmanni annars kæranda og fleiri vottorðum. Síðan reið sá kjörstjórnarmaður, sem hafði innsiglað kassann, sjálfur með hann til yfirkjörstjóra og var sagður einn á ferð, en nú er hér vottorð um, að meðkjörstjórarnir hefðu orðið honum samferða alla leið frá þingstaðnum þangað til hann átti örskamt heim til yfirkjörstjóra.
Vottorð frá sýslumanni sýnir, að honum hefir borizt kassinn rétt skömmu síðar. Loks er vottorð frá öðrum undirkjörstjórnarmanni, þar sem hann býðst til að votta undir eið að innsiglin hafi verið með nákvæmlega sömu ummerkjum þegar hann sá kassann opnaðan af yfirkjörstjóra og þau höfðu verið, þegar innsiglin voru sett fyrir á kjörstaðnum. Hér skiftir það mestu máli, að atkvæðin í þessum kassa voru svo fá, að þótt þau hefðu öll verið fölsuð, þá gat það engin áhrif haft á kosninguna, eftir því sem atkvæðamunurinn var milli þeirra kosnu þingmanna og þeirra sem næstir voru.
Deildinni þykir því ekkert að athuga við gildi kosningarinnar. En það væri rétt að alþingi gæfi kjörstjórunum stranga áminning um að fylgja kosningalögunum nákvæmlega í þessu efni, því að það mætti skifta um í kössunum á þennan hátt og gera kosningu ógilda, sem annars væri að öllu leyti lögleg.
Eg býst ekki við að nein ástæða sé til að greiða atkvæði um þennan þingmann sérstaklega, en skal leyfa mér að mæla með því, að kosningarnar verði allar samþyktar.