16.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)

Umræður um kjörbréfin

Jón Ólafsson:

Eg vil gera þá fyrirspurn, hvort slíkt mál liggi fyrir. Eg veit ekki til að nein tillaga liggi löglega fyrir þinginu um það mál. En eftir þingsköpum má ekki taka neitt mál fyrir á þingi, nema einhver þingmaður flytji það. En hér er ekki svo.