16.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (2499)
Umræður um kjörbréfin
Lárus H. Bjarnason:
Þingmaður Dal. vitnaði í, að 2 seðlar dr. Valtýs færu í bága við lögskipað fyrirkomulag atkvæðaseðla og því bæri að ógilda þá. En úr því að löghlýðni réði atkv. háttv. þm. og annara meirihl. manna um ógilding þessara atkv.seðla, vona eg að sömu hvatir stjórni atkv. þeirra um það atriði úr erindi síra Björns Þorlákssonar, sem nú er rætt um. Það er enginn vafi á Því, að krafan um þingsetu handa síra B. Þ. er ekki á dagskrá, og því þegar af þeirri ástæðu ólöglegt að taka nokkra ályktun um hana. Og í annan stað er það jafnáreiðanlegt, að krafa hans nær engri átt, af því að hann hefir ekkert kjörbréf. 50. gr. kosn.l. krefst þess, að sá þm., sem skoða eigi sem kosinn, hafi kjörbréf, og stjórnarskrá og þingsköp gjöra ráð fyrir hinu sama. Það er því nægilegt svar upp á það, hvort kosning Björns Þorlákssonar geti verið tekin gild, að hann hefir ekkert kjörbréf.
Ef kosning Björns Þorlákssonar verður tekin gild, er það hnefarétturinn sem ræður. Þeir menn, sem skoðast eiga þingmenn, verða að hafa kjörbréf. Þingið getur ekkj veitt B. Þ. kjörbréf og ekki heldur skyldað kjörstjórn Seyðisfjarðar til að gefa honum kjörbréf að svo vöxnu máli.