16.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

Umræður um kjörbréfin

Jón Ólafsson:

Eg vil að eins benda á það, að það er ger-ómögulegt fyrir þingið að taka til greina till. þm. Borgfirðinga. Þingið hefir að eins úrskurðarvald um það, hvort kosning dr. Valtýs væri gild. En þó að kosning dr. Valtýs sé gerð ógild, þá er kosning Björns Þorlákssonar ekki þar með samþykt. Ef þeir hefðu báðir jafna seðlatölu, væri það kjörstjórnarinnar að ákveða, hvor skyldi talinn kosinn. En seðlar hans eru alveg óþektir.