09.03.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (2525)

Umræður um kosninguna í Seyðisfjarðarkaupstað 9, mars.

Framsögumaður (Kristján Jónsson):

Eg verð að byrja með að skýra frá því, að allir nefndarmenn gátu ekki mætt á þessum fundi nefndarinnar. Þm. Vestmanneyja var fjarverandi, hefir forföll við réttarhöld. Vér hinir fjórir höfum athugað málið og höfum orðið ásáttir. Einn nefndarmanna hefir þó beðið að láta þess getið, að hann álíti ekki ástæðu til að flýta þessu máli svo mikið. Við hinir 3 erum ásáttir um að leggja það til að kosningin skuli nú þegar tekin gild. Kosning þessi var fyrirskipuð af landstjórninni með símskeyti, og hún hefir nú verið tilkynt þinginu á sama hátt. Ef því hið fyrra er löglegt, þá er einnig hið síðara löglegt. Þetta er raunar ekki í fullu samræmi við kosningarlögin, en þá ber þess að gæta, að kosningarlögin voru búin til áður en ritsíminn var til orðinn, enda verður hér ekki um verulega athugaverð afbrigði frá kosningarlagaákvæðunum að ræða, þar sem í stað bréflegrar skýrslu um kjörbréf er gefin skýrsla með símanum.

Eg hefi í höndum 2 símskeyti, annað til landstjórnarinnar, og er það kjörbókarútdráttur, hitt til þingmannsins (síra B. Þ.), og er það kjörbréf hans, eða yfirlýsing yfirkjörstjórnar um að hann sé rétt kjörinn og lýstur þingmaður. Samkvæmt símskeytum þessum er enginn vafi á því, hvernig kosningin hefir farið. Síra Björn Þorláksson hefir fengið 67 atkvæði, en dr. Valtýr Guðmundsson hefir fengið 54. Átta atkvæði urðu ógild, þar af fimm af þeim, sem féllu á síra Björn, og 3 af þeim, sem féllu á dr. Valtý.

Hvernig sem atkvæðagreiðslunni er velt fyrir sér, og þó að öll vafa-atkv. væru talin dr. Valtý, þá hlýtur síra Björn þó að hafa fengið minst 2 gildum atkvæðum fleiri en dr. Valtýr.

Leyfi eg mér að endingu fyrir hönd kjörbréfanefndarinnar að koma fram með þá tillögu, að kosning síra Björns verði samþykt og gild metin, og skal að eins taka það fram aftur, að einn háttv. nefndarmaður áleit, að ekki þyrfti að flýta málinu svona mikið, eins og gert er, en rétt væri að bíða eftir frekari skýrslum frá Seyðisfirði.