19.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (2531)

Lausnarbeiðni varaforseta efri deildar

Jens Pálsson:

Við höfðum lýst yfir því í bónarbréfi okkar, að við mundum gjöra grein fyrir ástæðum okkar til að beiðast lausnar ef þess yrði óskað. Nú hefir forseti látið í ljósi, að hann óskaði þess, og eg skoða það svo sem hann hafi gjört það fyrir deildarinnar hönd. Eg skal því skýra frá ástæðunum, þó þær hljóti að vera ljósar hverjum þingdeildarmanni. Þær eru í einföldum orðum þessar.

Það er kunnugt, að aldrei hafa farið fram hér hreint pólitískar kosningar fyrr en nú. Þjóðin sendi 25 þjóðkjörna menn á þing, sem tilheyrðu ákveðið öðrum stjórnmálaflokknum, og 9 er tilheyrðu hinum. Þar sem munurinn á flokkunum er svo mikill, leiðir þar af, að kjósendur hafi ætlast til, að meiri hlutinn skipaði einnig meiri hluta á þingi í hvorri deild um sig. Svo er einnig nú, þó ekki muni nema einu atkv., þar eð 6 sæti í deildinni eru skipuð þingm., kvöddum af stjórninni, af þeirri stjórn, sem studdi þann flokk, er þeir til heyrðu, og varð undir í kosningunum. Við álítum að það sé skylda meiri hlutans á þingi, að tryggja það, eftir því sem unt er, að meiri hluti þings hafi líka meiri hluta í báðum deildum. Þessari skyldu viljum við fullnægja á þann hátt sem beiðni vor fer fram á.

Hér hefir komið fyrir sá alveg óvænti atburður, að konungur hefir kvatt á sinn fund forseta þingsins alla. Fyrir því verða varaforsetar þeir, er kosnir voru í byrjun þings, að taka við forsetastörfum. Bæði forseti og varaforseti þessarar deildar voru kosnir úr meiri hlutanum. Við það, að forseti fer, og varaforseti tekur við, missist því eitt atkv. úr meiri hlutanum, og standa þá atvæðin þannig, að þau verða hnífjöfn hér í deildinni. Af því leiðir, að svo framarlega sem meiri hlutinn vill, eins og honum er skylt, tryggja sér ráð þingsins, áhrif sín á málin, þá munu, ef ekki verður sú breyting, er við förum fram á, mörg mikilsvarðandi mál verða tafin frá meðferð og verða að bíða jafnóðum og þau koma frá Nd. Til þess að fyrirbyggja þetta, til þess að störf deildarinnar geti gengið ótafin og óhindruð, og deildin geti tekið hvert það mál fyrir, sem tilbúið er fyrir hana, er þessi beiðni fram komin, og með því einu móti getur þetta orðið, að beiðni vor verði veitt.

Eg hefi heyrt, að sumir deildarmenn telji þetta ekki rétt þingskapalega. En það get eg ekki skilið. Eg get ekki skilið þingsköpin öðru vísi en að deildin ein hafi hér fult vald til að veita leyfi og synja. Eg held því fram sem skilningi mínum, að ekki þurfi að skoða atkvæðagreiðslu um þetta mál sem afbrigði frá þingsköpunum, þurfi ekki »kvalificerað majoritet«, heldur hafi deildin fullveldi í þessu.

Þetta er nýmæli, og því kann einhverjum að verða hverft við það. En eg hygg að ekki þurfi að skoða þetta sem neitt ódæmi eða þingvíti, og það því fremur, sem ríkisþingstíðindin dönsku, sem eg hefi hér fyrir framan mig á borðinu, sýna, að sams konar hefir skeð í fólksþingi Dana í jan. 1905, án þess séð verði, að nokkur hafi hneykslast á því. Forseti Trier og varaforseti Krabbe sögðu af sér sér mitt undir umræðum fjárlaganna, og einmitt af því að flokkaskiftingin hafði breyzt fyrir óvæntan atburð. Hér hefir líka orðið sá óvænti atburður, að konungur hefir kvatt á sinn fund forsetana; það kom engum til hugar í byrjun þings, en það raskar hlutföllum flokkanna í deildinni svo mjög, að verði þetta ráð ekki tekið, hlýtur það að tefja störf deildarinnar og seinka framgangi sumra mála um óákveðinn tíma, sem óforsvaranlegt er fyrir meiri hluta þings að tefla í nokkra tvísýnu.

Eg hefi nú skýrt frá ástæðum okkar til að beiðast lausnar, og eg sé ekki ástæðu til að tala meira að sinni. Eg vona að umræður um svo einfalt mál verði rólegar. Eg trúi ekki öðru en deildin sjái, að ástæður okkar eru eðlilegar og skiljanlegar, og verði við tilmælum okkar, til þess að greiða fyrir gangi málanna, svo að engar tafir þurfi að verða á störfum deildarinnar.