19.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (2532)

Lausnarbeiðni varaforseta efri deildar

Lárus H. Bjarnason:

Eg get vel skilið að meiri hlutinn vill koma þessu fram, og eg efast ekkert um að formælandi, háttv. þingm. G.-K., hafi sagt . satt Um tilganginn. En af því má ekki draga neina ályktun um hvað gjöra skuli, enda var röksemdaleiðsla háttv. þingm. tvímælalaust gersamlega rakalaus.

Eg lít svo á, að það sem hér er farið fram á, þurfi tvímælalaust afbrigði frá þingsköpunum, og höggvi jafnvel nokkuð nærri 35. gr. stjórnarskrárinnar. Þar stendur: »Hvor þingdeildin um sig og eins hið sameinaða alþingi kýs sjálft forseta sinn og varaforseta«. Eg játa að vísu, að hér stendur ekki beinum orðum, að kjörið gildi þingtímann út, en þar sem sagt er, að hvor deild og þing kjósi sér forseta án allrar tímatakmörkunar, liggur beint fyrir að skilja það svo sem kjörið gildi allan þingtímann. Kjósi menn sér t. d. fundarstjóra, er hann ávalt kosinn til alls fundarins, án þess það sé nokkurn tíma beinlínis tekið fram.

En látum svo vera, að veiting lausnarinnar verði ekki skoðuð stjórnarskrárbrot, þá er það þó að minsta kosti öldungis ómótmælanlegt, að til hennar þarf afbrigði frá þingsköpunum. Í 7. gr. stendur fullum fetum: »Kosning forseta, varaforseta og skrifara, bæði í sameinuðu þingi og í báðum deildum, er fyrir allan þingtímann það ár«. En af 53. gr. leiðir aftur, að til að bregða út af þingsköpunum þarf leyfi ráðherra og samþykki ¾ þingmanna er atkv. greiða. En þar á ofan getur það verið vafamál, hvort þetta afbrigði er leyfilegt. Það liggur sem sé ekki fjarri að álykta svo sem 53. gr. eigi að eins við dagleg þingskapaatriði, svo sem styttingu fresta o. s. frv. Í þingsköpin frá 1905 var það ákvæði tekið upp, að varaforsetar skyldu vera tveir, vafalaust til þess, að aldrei skyldi reka að því, að kjósa þyrfti upp aftur, og til þess að komist yrði hjá því að einu sinni ákveðið atkvæðamagn ruglaðist. En verði veiting lausnarinnar álitin leyfileg, þá er það þó að minsta kosti öldungis ómótmælanlegt, að til þess þarf ¾ atkv. Um það þarf ekki að þræta. Annað væri lögbrot, og það situr sízt á alþingi að brjóta lög, sem það sjálft hefir sett.

En hverjar eru svo ástæðurnar til þessarar lausnarbeiðni ? Jú, háttv. þm. G.-K. sagði, að rétt hlutföll milli flokkanna mundu raskast ef hún yrði ekki veitt, að sá flokkur sem varð í meiri hluta við kosningarnar, mundi ekki verða í meiri hluta hér í deildinni, ef hann yrði að skipa forsetasætið einum af sínum mönnum. En um hvað snerust kosningarnar? Um eitt einasta mál, sambandsmálið, og ekkert annað. Og það mál kemur ekki fyrir deildina fyr en forsetarnir eru komnir aftur úr leiðangrinum, svo að fyrir það mál getur það ekki haft neina þýðingu, hvernig hlutföll flokkanna eru meðan forsetarnir eru burtu. önnur mál eru ekki flokksmál; það er því ekki til neins að vitna í kosningarnar.

Og hvað sem kosningunum 10. sept. f. á. líður, þá er það meiri hlutanum og engum öðrum að kenna, ef atkvæði flokkanna verða nú jöfn hér í deildinni í bili. Meiri hlutinn var ekki valdalistarlausari en það í þingbyrjun, að hann skipaði sínum mönnum í öll embætti sem hann átti ráð á, þar á meðal í bæði varaforsetadæmin. Og það er líka meiri hlutanum að kenna, að hæstv. forseti verður nú að fara til Danmerkur. Konungur hafði eins og kunnugt er óskað þess, að meiri hlutinn stingi upp á 3 ráðherraefnum, en á það þorði meiri hlutinn ekki að hætta, og því verður hann nú að sjá á bak öllum forsetunum í einu. Og nú ætlast meiri hlutinn til að minni hlutinn hjálpi sér til að bæta úr þessum skyssum! En þar er sannarlega til of mikils mælst.

Og hvað er hv. meiri hluti eiginlega hræddur við, úr því að hann sækir þetta mál svona fast. Það liggur þó í augum uppi að vér minnihluta-menn fáum ekkert positivt vald, þó að forsetaskipunin haldist; vér gætum að eins stöðvað mál og fyrir það er ógnarlega auðvelt að komast, því að þingmeirihlutinn getur alveg ráðið hvaða mál koma hingað til deildarinnar og forseti getur ráðið því, hvaða mál hann tekur til meðferðar. Auk þess þarf meiri hlutinn alls ekki að vera hræddur um að minni hlutinn mundi beita stöðvunarvaldi sínu illa. Minni hl. sem nú er fer ekki að ráði sínu eins og minni hl. sem var. Fyrst og fremst yrði það nú skammgóður vermir, þó að vér ónýttum nokkur mál, og í annan stað munum vér minnast þess, að minni hl. getur orðið meiri hl., og á þá helzt að koma í verk því, sem hann hélt fram sem minni hluti. Þessi hugsun ætti að nægja til þess að kippa burt hræðslu meiri hlutans; eg mun að minsta kosti ekki nota mitt atkvæði móti meiri hlutanum, nema að gild rök séu til. Og eg vona að flokkurinn hafi ekki svo óhreint mjöl í pokanum, eða hafi nokkuð svo vont mál á prjónunum, að hann treysti sér ekki til að fá eitt atkvæði með því úr minni hlutanum, en væri svo, þá ætti það mál sannarlega heldur ekki skilið að ganga fram.

Hér er því í rauninni farið fram á það, að minni hlutinn skrifi sjálfur undir þann dóm um sig, að hann sé ekki fær um að taka hlutdrægnislaust í þau mál, sem honum er ætlað að fjalla um. Það er farið fram á, að vér förum að vana okkur pólitiskt. Eg skil ekki ekki, að hv. 1. varaforseti skuli ekki sjá þetta.

Og hverjar yrðu afleiðingarnar af því, ef vér létum þetta eftir? Það er augljóst að fái núverandi varaforsetar lausn gætu hinir nýkjörnu líka sagt af sér, ef þeim biði svo við að horfa, og svo gæti það gengið koll af kolli. í rauninni gæti meiri hlutinn með sama rétti farið fram á, að einhver af oss minni hluta mönnum legði niður þingmensku. Og það er enda viðbúið, að þeir biðji oss »elskurnar sínar« að gera sér þann smágreiða, ef vér látum nú þetta eftir þeim. Mikið vill meira.

Annars finst mér satt að segja þetta umsóknarumstang ekki vera annað en skípaleikur.

Eg býst við að hv. deild líti svo á, að sérstakt leyfi þurfi til þess að þessir hv. herrar geti sagt af sér, og eg vona, að minni hlutinn fari ekki að vana sig pólitiskt, með því að gefa leyfið. Eg vona að minni hlutinn, sem líka ber ábyrgð á gerðum þingsins, fari ekki að afsala sér því litla valdi, sem rás viðburðanna skildi honum eftir og kveði þannig upp dauðadóm yfir sjálfum sér.

Eg hefi svo ekki meira að segja að sinni um þessa barnslegu beiðni vina vorra, háttv. varaforseta.