20.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í B-deild Alþingistíðinda. (254)

13. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Framsögum. (St. Stefánsson):

Eg hefi eiginlega engu við það að bæta, sem stendur í nefndarálitinu. Nefndin leit svo á, að hér væri um gott mál að ræða. Hún áleit að þessi sjóður, sem ætlast er til að verði stofnaður, gæti orðið að mjög miklum notum í framtíðinni. Meðal annars er enginn vafi að hann muni gera kennarastöðuna miklu aðgengilegri og fýsilegri, því að nú sem stendur er sú staða bæði erfið og illa launuð. Það ýtir undir menn að gjörast kennarar, ef þeir geta vænzt einhvers styrks þegar þeir eru orðnir gamlir eða bilaðir að heilsu.

Til þess að sjóðurinn gæti vaxið nokkru örar, leizt nefndinni rétt, að þeir kennarar, sem hefðu nokkru hærri laun, yrðu að gjalda hærra tillag til sjóðsins. Nefndin hefir lagt til að sú hækkun yrði í %, eins og tekið er til í breyt.till. nefndarálitsins.

Að öðru leyti leggur nefndin til að frumv. verði samþykt óbreytt. Eg skal geta þess, að umsjónarmaður fræðslumálanna hefir tjáð sig hlyntan breytingunni, og ekkert haft við það að athuga.

Eg vona að þessu máli verði vel tekið meðal kennarastéttarinnar á landinu, enda er frumvarpið komið frá kennarafélaginu í fyrstu.