19.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)

Lausnarbeiðni varaforseta efri deildar

Jens Pálsson:

Háttv. 6. kgk. sagði að það sem hefði skapað þetta ástand, væri virðingarfíkn meirihlutans og ekkert annað. Eg bjóst ekki við slíkum brixlyrðum í okkar garð. Háttv. þm. veit það vel, að það hefir alt af verið venja að kjósa forsetana úr meirihlutanum. Það hefir alt af verið talið sjálfsagt, að meirihlutinn kysi þá úr sínum flokki.

Þess hefir verið getið, að eg hafi sagt, að eg mundi ekki hika við, sem forseti, að fresta fundunum. Það er rétt; eg sagði, að eg mundi gera það, ef nauðsyn bæri til. Eg skil ekki að það þurfi að hneyksla neinn. Eg mundi í lengstu lög stía þeim málum frá, sem gætu orðið flokksmál, mundi ekki láta þau mál koma fyrir, sem ágreiningur væri um milli flokkanna. Til þess að ekki komi til að þessa þurfi með, og til að forðast þann kostnað, sem af þessu mundi leiða, er það eina ráðið að samþykkja lausnarbeiðni okkar varaforsetanna.