19.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (2546)

Lausnarbeiðni varaforseta efri deildar

Sigurður Stefánsson:

Eg stend upp út af ræðu háttv. 6. kgk. Hann virðist hafa misskilið mig; ef til vill hefi eg ekki talað eins ljóst sem skyldi. Eg talaði um þá kgk. þm. sem flokk; að eg hefði þekt þá sem kgk. þm. hingað til. En um þá tvo nýju veit eg ekki hvort þeir verða eins í samvinnu sem hinir. Þetta var meiningin. Ennfremur sagði eg ekkert um það, að allur konungkjörni flokkurinn mundi greiða atkv. á móti lausnarbeiðninni. Eg sagði, að það væri undarlegt, ef allur sá flokkur findi það skyldu sína, að greiða atkv. á móti henni.