31.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (2551)
92. mál, hlunnindi bókasafna
Sigurður Stefánsson:
Eg gerði grein fyrir frumvarpinu við 1. umræðu og mintist jafnframt á, að eg mundi taka með þökkum leiðbeiningum frá lögfræðingum í deildinni, en þar eð engin breyt.till. hefir komið fram, get eg verið fáorður. Eg skal geta þess, að ákvæðin í 2. gr. eru tekin upp eftir samhljóða ákvæðum í 1. gr. í lögum 22. okt. 1907 um vatnsveitu í Reykjavík, og er því ætlast til að sama aðferð sé viðhöfð við eignarnámið, sem notuð er hér. Eg vona að deildin lofi frumvarpinu að ganga fram tafarlaust.