30.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)

44. mál, skipun læknishéraða

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg ætla mér ekki að lengja þessar umræður, sem nú eru orðnar. Eg vil að eins leyfa mér að þakka hinum háttv. formanni meiri hl. (Sk. Th.) fyrir það heitorð, er hann hefir nú gefið, að styðja að stofnun Norðfjarðarlæknishéraðs á næsta þingi.

Eg vil undirstrika þessi orð hins háttv. þm. og bið aðra háttv. þingmenn að minnast þeirra.