19.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (2589)

144. mál, skipun læknishéraða Norðfjarðarhérað

Flutningsmaður (Jón Jónsson:

S.-Múl.): Það er að eins stutt athugasemd, sem eg vildi leyfa mér að gera við ræðu h. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.). Hann sagði, að nefndin hefði viljað gera það að sinni reglu, að fjölga læknishéruðunum smátt og smátt. Sú regla getur verið góð og eg er ekki að mæla á móti henni. En háttv. frmsm. hefir ekki skilið rétt það sem eg sagði. Eg var ekki að mæla sérstaklega á móti Nauteyrarhéraði, eg var að eins að bera það saman við Norðfjarðarhérað, og þrátt fyrir yfirlýsingu hans um samanburðinn, þá verð eg að halda mig við mína skoðun í því efni, og eg held að eg hafi nokkru meiri ástæðu til þess að álíta, að hún sé rétt en háttv. frmsm. hefir hvað hans skoðun snertir. Hann er vitanlega alveg ókunnugur á Austfjörðum, en eg þekki allvel til bæði þar og við Ísafjarðardjúp.

Ef á að fjölga um eitt læknishérað, þá verður að gá að því, hvar þörfin er mest og hvar læknirinn getur komið að mestu gagni. Það sem mér og háttv. frmsm. ber á milli, er einmitt um það atriði, hvar þörfin sé mest, og eg verð að halda því fram, og eg hefi fulla ástæðu til þess, að þörfin sé mest í Norðfirði. Frmsm. sagði að eg hefði ekki viljað gera mikið úr örðugleikunum í Nauteyrarhéraði, en þetta er ekki rétt, eg var að sýna fram á að örðugleikarnir væru fult eins miklir í Norðfirði og að læknir þar yrði að meiri notum en í Nauteyrarhéraði og eg er sannfærður um það, að ef nefndin hefði verið kunnug staðháttum og kunnugleiki ráðið, þá hefðu tillögur hennar ekki orðið eins og þær eru nú. Það vill nú svo óheppilega til, að fáir þm. eru kunnugir báðum stöðunum, en ef svo væri, hygg eg að þeir mundu bera mér vitni.

Eg býst við að gagnslaust sé að tala um þetta sem fleira, það þýðir ekki að eyða orðum um það, því að það er víst alt fyrirfram ákveðið á æðri stöðum. En eg veit, að eg er kunnugri en frmsm., hvað þetta mál snertir, og fullyrði að tillögur nefndarinnar eru rangar og ósanngjarnar.