27.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (260)

14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.

Framsögumaður (Jósef Björnsson):

Eg skal ekki hafa langa framsögu, en eg verð þó að fara nokkrum orðum um þau aðalatriði málsins, sem hafa vakað fyrir stjórninni og nefndinni. Nefndin álítur frv. þarfa réttarbót, sem beri að koma til framkvæmda. Í því felst viðurkenning um að þörf sé að friða þær litlu leifar, sem eru eftir hér á landi af skógi og kjarri. Það er ekki hægt að dyljast þess, að illa hefir verið farið með skógana og mjög ógætilega. Það er víst, að það er að mestu mönnum að kenna, að landið er orðið svo skóglaust. Þó að náttúran hjálpi að vísu til á mörgum stöðum að eyðileggja landið, eiga mennirnir þó mesta sökina. Það hefir í ræðum og ritum opt verið bent á, að illa og óhyggilega sé farið með skógana. Þessi illa meðferð er innifalin í ýmsum þeim atriðum, sem í þessu frv. er reynt að girða fyrir. Eg skal nú fara nokkurum orðum um helztu atriðin:

1. Það er of mikið höggvið, og þannig að eftir verða ber svæði, en það gerir það að verkum, að stormar fá aðgang að skógunum og eyða þeim. Berhöggnu svæðin blása upp, og uppblásturinn étur sig út svo þau stækka smám saman. Kyrkingur kemur og í skóginn í kringum beru svæðin. Uppblástur og kyrkingur kreppa því að skóginum og eyða honum.

2. Það er höggvið illa, stofnar brotnir að meira og minna leyti, og sárið skilið eftir óslétt. Vatn sígur því í tréð og feygir rótina, svo að ekki getur nýtt tré vaxið upp af henni.

3. Skógur, hrís og lyng er rifið upp með rótum, og losað þannig um jarðveginn, svo að hann getur blásið upp. Afleiðingin verður oft sú, að þar sem var áður skógur og kjarr, verða gróðurlausir melar. Þessa óhæfu reynir frumv. að koma í veg fyrir, með því að banna að rífa hrís og lyng.

4. atriði er mjög mikils vert, það er beit í skóglendi. Skógræktarstjórinn hefir rétt fyrir sér í því, að það er mjög skaðlegt að beita lágan skóg, því að við það eyðileggjast yngri greinar eða árssprotar og brum, sem peningurinn bítur. Sama verður þó skógurinn sé hávaxinn ef snjór er á jörðu, því þá ná skepnurnar, sauðfé og geitur, hærra, svo árssprotarnir verða bitnir af. Börkur er einnig nagaður og skemdur, þegar jarðskarpt er. Þetta atriði er verst við að eiga og verður mest til að spilla þeim skógleifum sem til eru. En með góðum vilja og skilningi má þó koma nokkuð í veg fyrir þetta. En þó er því svo háttað á mörgum jörðum, sem hafa skóg, að þörfin til beitar er mikil.Á síðari árum hefir löggjafarvaldið látið málið til sín taka, og viðurkent að full þörf væri á að hafa eftirlit með meðferð skóganna. Eins og háttv. þingdeild er kunnugt, voru gerð samþyktarlög á þingunum 1894 og 95, til þess að friða skógleifar o. fl., en því miður hafa þessi lög gert lítið gagn; það eru að eins tvö héruð, sem gert hafa samþyktir samkvæmt þeim lögum. Ef önnur héruð hefðu fylgt dæmi Rangárvallasýslu og Vestur-Barðastrandarsýslu, og gert friðunarsamþyktir, þá væri þegar búið að taka í taumana, og þetta lagafrumvarp hefði þá ekki verið nauðsynlegt. En með því að þetta hefir enn ekki verið gert, og skógarleifar liggja ófriðaðar hingað og þangað, þá er brýn nauðsyn að koma með almenn lög sem nái yfir land alt. Nú er líka hægt að hafa eftirlit með að lögunum sé hlýtt. Það geta skógræktarstjórinn og skógarverðirnir gjört, sem skipaðir eru samkvæmt lögunum 1907. Nefndin telur það sjálfsagt að háttv. deild samþykki frv. En nefndin hefir þó, í samráði við skógræktarstjórann, leyft sér að koma fram með nokkrar breytingartillögur. Eg vil leyfa mér að gera grein fyrir breytingartillögunum í örfáum orðum.

Breyt.till. við l. gr. er að nokkru leyti orðabreyting. Þó skal þess getið, að skógræktarstjórinn upplýsti það fyrir nefndinni að orðið »gangar« í stjórnarfrumvarpinu hefði slæðst inn í það af misskilningi, og að í þess stað hefði átt standa, að aðeins mætti grisja skóginn. Nefndin fann ástæðu til að bæta við að ekki mætti rífa víði og mel. Henni virtist og sjálfsagt að bæta því við, að mosa sé ekki bannað að rífa á mýrlendi, þar sem hvorki er skógur né kjarr.

Breyt.till. við 5. gr. er eiginlega að eins orðabreyting, sem gefur það glegra til kynna, að þar sem svæði eru tekin til friðunar, þá sé ætlast til að landeigandi eða nothafi heimti ekki að jafnaði gjald fyrir að láta af hendi land til þessara afnota. Eigi að síður er þó sjálfsagt að nothafi geti krafist endurgjalds, sé honum meinlegt að missa afnot landsins, svo hann þurfi, ef til vill, að leigja land í þess stað. En þetta getur komið fyrir á landlitlum jörðum.

Um breyt.till. við 7. gr. má geta þess, að í stað orðanna í nefndarálitinu: »7. gr. orðist þannig«, á að standa: 1. málsgr. 7. gr. verði: »Eigendur og notendur« o. s. frv. til enda.

Í þessari breyt.till. eru nokkrar verulegar efnisbreytingar. Tímanum er breytt frá því sem ákveðið er í stjórnarfrumv. Nefndin hefir fært tímatakmarkið fyrir sauðfjárbeit, og sett 1. nóv. til 1. júní fyrir suma landshluta, þar sem vetrarríki er mest og snjóþyngsli. En það má venjulega búast við, þó snjóþungt sé, að ekki falli snjór verulega í okt. Í snjóminni landshlutum, á suður- og vesturlandi, að undanskildum Vestfjörðum, hefir nefndin samkvæmt samráði við skógræktarstjórann, talið nóg að setja takmarkið frá 1. jan. Seinna tímatakmarkinu þótti nefndinni ekki rétt að breyta, því að sjálfsagt er að verja eftir föngum, þegar skógurinn er að lifna.

Fleiri orðum skal eg ekki fara um málið, og eg óska og vona að háttv. deild taki frumv. vel með áorðnum breytingum.