18.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (2600)
Ferðakostnaðarreikningar
Magnús Blöndahl:
Eg hefi heyrt það sagt, að reikningur sá frá dr. Valtý, sem hér er um að ræða, sé nokkuð hár, eitthvað á sjötta hundrað krónur. Eg fæ ekki séð, að sú upphæð nái nokkurri átt; jafnvel þó að hann reikni sér dagpeninga frá því að hann sté á skip í Kaupm.höfn og þar til er hann kemst þangað aftur nú með »Ceres« eða »Sterling«, ferðist á fyrsta farrými og haldi sig sæmilega ríkmannlega, þá nær þessi upphæð samt sem áður eigi nokkurri átt. Mín tillaga er því sú, að hinir háttv. forsetar færi reikninginn niður að miklum mun.