18.02.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (2602)
Ferðakostnaðarreikningar
Jón Magnússon:
Eg vil leyfa mér að mótmæla því, að háttv. þingm. Árnesinga hafi rétt til að ámæla kjósendum fyrir það, að þeir kusu þennan þm. Þetta ámæli er mjög óviðeigandi; úr því dr. V. G. hafði kjörgengi, höfðu kjósendur fullan rétt til að kjósa hann. Vér þingmenn höfum engan rétt til að setja kjósendum þessa lands stólinn fyrir dyrnar að þessu leyti. Auk þess er að minsta kosti óþarft að vera að færa að dr. V. G. fjarverandi.