27.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.
Eiríkur Briem:
Í niðurlagi 1. gr. eins og hún á að vera eftir till. nefndarinnar er sennilega prentvilla. Þar stendur: á skóg og kjarrlausu landi, en meiningin mun vera: á skóglausu og kjarrlausu landi; en þetta mætti laga með því, að setja band á eftir skóg. En úr því eg er staðinn upp, vildi eg skjóta því til nefndarinnar, hvort ekki væri réttara að setja »dómkvaddra« á undan óvilhallra manna mati, því að þá má heimta að þeir staðfesti umsögn sína með eiði