28.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)
Um skipun ransóknarnefndar
Ráðherrann (B. J.):
Eg þóttist gefa fullnægjandi skýringu á þessu áðan.
Það er vitanlegt, að eigi að fara fram fullnægjandi skoðun, þarf að yfirfara allan hag bankans. Annars verð eg að líta svo á, að ekki sé rétt að nota þetta sem æsingameðal gegn stjórninni. Hún gerir þetta alt upp á sína eigin ábyrgð.
Sé það hættulegt, að þessi fregn hafi borist út fyrir pollinn, mun það stafa af miður hollum æsingum gegn stjórninni, og eg hygg, að eg geti frætt menn um það, að fulltryggjandi sé það, sem stjórnin hefir gert til þess að byggja fyrir misskilning erlendis — nfl. að senda opinbert símskeyti um þessa athöfn og hvað í henni felist.