26.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)

9. mál, ellistyrkur

Gunnar Ólafsson:

Það lítur ekki út fyrir að uppástunga mín fái mikinn byr hér í deildinni, enda ekki von að menn átti sig á þessu í fljótu bragði, þar sem uppástungan fer nokkuð í aðra átt, en hingað til hefir þótt hlýða að halda. Það var og mín meining að eins að opna augu hv. þingmanna fyrir þessum vegi á greiðslunni til sjóðsins. Eg get ekki séð, að slíkur greiðslumáti yrði að eins á færi efnaðra manna, eins og háttv. þingm. V.-Ísf. sagði, heldur og engu síður hinna, því að eins og eg tók fram áðan, vinna menn yfirleitt fyrir svo háu kaupi á þeim aldri, sem hér er um að ræða, að þeim ætti flestum að veitast létt að gjalda það. Og eg er þess full viss, að á efri árum æfinnar mundi margur óska þess, að hafa int gjaldið af hendi, þá er hann var ungur og hafði ekki fyrir neinum að sjá.

En þar sem þessi uppástunga mín nær eigi fram að ganga í þetta sinn, eftir því sem mér virðist, þá fjölyrði eg ekki um hana frekar.