02.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (2635)

14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.

Lárus H. Bjarnason:

Eg vil að eins benda háttv. 4. kgk. þm. á það, að það er allsendis ónógt, enda lítið sem ekkert aðhald í því, þó að lögin mæltust til að skógur væri ekki beittur um skör fram á »vorin«. Það orð er svo teygjanlegt. Er átt við almanaksvorið eða hvað, tímabundið frá jafndægrum til sumarmála, eða kanske til fardaga eða lengur. Það er sannarlega ekki til of mikils mælst, að eigendur og notendur jarða skuli »kosta kapps« um að beita skóg »sem minst, einkum þegar snjór liggur á jörð og að vorinu«. Um hitt ætla eg ekki að deila við háttv. 2. þm. G.-K., því að það er öllum ljóst, að seinni hluti 7. gr. á ekkert erindi út í lífið, ef fyrri hlutinn er feldur burt.