02.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)
14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.
Kristinn Daníelsson:
Háttv. 5. kgk. þm. lét á sér skilja, að nefndin hafi komið fram með breyt.till. á þgskj. 67 fremur til samkomulags við háttv. 4. kgk. þm. heldur en af hinu, að hún áliti þær vera eiginlega til bóta. Þetta er ekki rétt, því að nefndin áleit einmitt að breytingarnar mundu verða til bóta á frumvarpinu. — Eg hefi altaf þózt vita, að það mundi verða mjög erfitt að gera lögin svo úr garði, að þeim yrði fylgt út í æsar, t. d. að því er snertir lyng- og mosarif o. fl. Og stefna nefndarinnar var strax sú, að taka tillit til þessa, og að hafa lögin ekki alt of hörð, því að það gæti einmitt orðið til þess, að þeim yrði síður hlýtt en ella, og kæmu þar af leiðandi að minna gagni. Það vill oft verða svo, að mjög hörð og »kategorisk« ákvæði laga leiða til óhlýðni, og gera þannig þvert á móti því að ná tilgangi sínum. — En breytingartillögur nefndarinnar ganga allar í þá átt, að draga nokkuð úr stangleika laganna. Held eg að þau mundu þá koma að betra gagni, sem stuðningslög fyrir skógræktina, heldur en ef ákvæði laganna væru höfð svo ströng, að almenningi þætti óþolandi. Eg verð því að halda fast við breytingartillögur nefndarinnar, og vona að deildin láti þær ná fram að ganga.