24.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (2640)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg ætla að byrja á því að þakka hv. 2. þgm. Árn. (S. S.) fyrir skemtunina í gær og í dag. Eg hefi gaman af röskum bardögum, og háttv. þgm. barðist hraustlega við sjálfan sig. Hann byrjaði á breyt.till.-grúa og fjárframlögukröfum og endaði með sparnaðar-áminningum. En röksemdafærsla hans var þannig, að öll spjót röksemda hans standa á þeirri niðurstöðu, er hann komst að. Háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) sagði að tilgangurinn væri að styrkurinn til smjörbúanna færi alt af lækkandi, og samkvæmt frumv. lækkar hann um 1000 kr. síðara árið; en þó stingur hann upp á að hækka hann nú hvort árið um 2000 kr., til þess að hann — lækki!! Háttv. þgm. vill stíga tvö spor aftur á bak, til að geta stigið eitt spor áfram.

Annars vildi eg að úthlutun styrksins væri hagað svo, að ekkert rjómabú fengi styrk lengur en fimm ár — sama búið —; hæstan fyrsta árið, og síðan smálækkandi næstu 4 ár, og svo félli hann niður.

Eg ætla ekki að leggja neitt á móti lánveitingarheimild til Slátrunarhúss Suðurlands, þótt það sé og hljóti að vera einokun, því að með því að sameina alla framleiðendur, verður samkeppnin útilokuð. Eg treysti svo orðum háttv. 2. þgm. Rang. (E. J.) að einokuninni verði ekki eins beitt og verið hefir. En þá mun eg líka greiða atkv. mitt með láninu til hins slátrunarhússins, með þeirri miklu tryggingu, sem það býður á skilvísri greiðslu.

Háttv. 2. þgm. Árn. (S. S.) sagði, að slátrunarhúsið hefði ekki »monopol«, en aftur á móti hlutafélagið Völundur. Eg svara þessu af því, að hv. 2. þgm. Rvík (M. Bl.) er dauður, en honum stóð næst að svara því. Hv. 2. þgm. Árn. (S. S.) virðist ekki skilja orðið »monopol«; fer honum líkt og sveitungum hans sumum austan fjalls, sem tekið hafa upp ýms útlend orð, er þeir vita ekki hvað þýða, kalla t. d. ágætismenn sína sérlega »idiot«-menn — það á að merkja »þjóðlega«!! Hlutafélagið »Völundur« hefir ekki reynt að koma öllum trésmiðum í samtök sín; hann er því ekkert einokunarfélag, hefir ekkert »monopol« til smíða eða verzlunar.

Það hefir verið mikið talað um samanburð á landbúnaði og sjávarútvegi og fjártillögum til þessara atvinnugreina. Hér hafa verið viðhöfð algerlega röng og villandi orð um landbúnaðinn; ætla eg að það væri háttv. þgm. Snæf. (S. G.) er svo mælti, að landbúnaðurinn væri öruggasti og tryggasti atvinnuvegur landsins — sá grundvöllur, sem allir aðrir atvinnuvegir hvíldu á. En slík skoðun er ómeltur arfur eldri kynslóða, og slík orð eru ekki annað en rödd úr dauðra manna gröfum.

Það var svo einu sinni, að landbúnaðurinn var aðalatvinnuvegur þessa lands. En það var á dögum feðra vorra. Þeir dagar eru nú horfnir.

Það mun að vísu vera fjórðungur landsmanna, sem stunda sjávarútveg. En þessi litli minni hluti landsmanna borgar beint til landssjóðs af atvinnuvegi sínum 120,000 kr., þar sem landbændur borga af sínum atvinnuvegi 50,000 kr. Hlutfallið er sem 12 á móti 5. En ef þess er gætt, að landbúnaðurinn fær í árlegan beinan stuðning frá landssjóði 400,000 kr. (þótt ekki sé taldar yfir 240,000 kr. til vegabóta, sem þó eru mestmegnis í landbúnaðarins þarfir), en sjávarútvegurinn, þessi stærsti og afraksmesti atvinnuvegur landsmanna fær að eins 15,600 kr. í árlegan stuðning úr landssjóði, þá sést, að sjávarútvegurinn leggur í landssjóð í beinum gjöldum 104,400 kr. umfram það sem til hans er lagt; en að 350 þús. kr. skortir til þess, að beinu gjöldin af landbúnaði hrökkvi til þess, sem honum er lagt úr landssjóði.

Aðflutningsgjald og önnur óbein gjöld gjalda sjávarútvegsmenn miklu meir en að tiltölu réttri gagnvart landbúnaðarmönnum.

Sjávarútvegurinn geldur því ekki að eins sinn hluta til landssjóðs að hlutfalli réttu, heldur leggur landbúnaðinum 350,000 kr. ölmusu árlega að auki í beinan styrk.

Mundi það nú ekki þykja býsna vel gert af bónda, er byggi á ¼ jarðnæðis, að borga landskuld og leigur bæði fyrir sig og hinn bóndann, er byggi á ¾ jarðarinnar og leggja þó bóndanum á stærri jarðarpartinum stóreflis sveitarstyrk að auki? En þetta er það sem sjávarútvegurinn gerir landbúnaðinum.

Af hverju er eg nú að sýna fram á þetta? Ekki til að spilla fyrir framlögum til landbúnaðarins, heldur til að sýna, hve sjávarútvegnum er gert rangt til hér á þingi, hve fjarstætt er, að hann sé rétt metinn, og hver endileysa það er, að kalla nú orðið landbúnaðinn aðal-atvinnuveg og undirstöðu-atvinnuveg landsins. Afurðir hans eiga örðugt að keppa á heimsmarkaðinum við kjöt þeirra landa, er framleiða það ódýrara, og við ull þeirra landa, er hafa hana betri. En sjávarmenn eru nú beztu kaupendur að afurðum landbúnaðarins, og verða vissustu kaupendur og beztu því meir, sem sjávarútvegurinn eykst. Hér innanlands er markaðurinn, sem hæst borgar. Sjávarútvegurinn verður sá atvinnuvegur, sem ber landbúnaðinn uppi.

Þegar eg og aðrir, sem skynja þetta hlutfall rétt, viljum þó halda áfram að styðja landbúnaðinn, þá er það í þeirri von, að hann taki þeim framförum, að kálfurinn með tímanum launi eldið. Vér játum, að hver atvinnuvegur landsins eigi að vera öðrum til stuðnings.

En hitt teljum vér ekki sanngjarnt, að fara svo illa, sem gert er, með sjávarútveginn, t. d. með því að synja um féð til að leggja sæsíma til Vestmannaeyja — fyrirtækis, sem yrði sjávarútvegi alls Íslands til stórkostlegra framfara, kostar einar 34,000 kr., og mun borga sig beinlínis árlega, og gefa landssjóði stórar tekjur að auki.

Með þessum ummælum vildi eg reyna að vekja af svefni þau nátt-tröll hér í þingsalnum, sem enn lifa í móki hálfa öld aftur í liðinni tíð.

Enn voru nokkur atriði, sem eg vildi minnast á. Háttv. 2. þgm. Árn. (S. S.) kvaðst vilja stuðla að því, að bændaskóli kæmist á á Eiðum. Það er góðra gjalda vert. En eg vil minna hinn háttv. þgm. á það, að þar er nú verkleg kensla og sýslurnar hafa ráðist í það verk, sem nálega er einsdæmi hér á landi, að láta hlaða hús úr steini handa skólanum á sinn kostnað. — Þetta hafa þær borgað úr sínum vasa. Á þessu þingi er ekki hægt að gera skólann að bændaskóla. Nú vil eg spyrja hann, hvort hann vilji, að ókleift sé að halda skólanum uppi. Eg vona, að hann sjái, að landssjóði er haldkvæmast að styrkja þann vísi, sem er.

Eg er ekki samþ. háttv. 1. þm. Rvík (J. Þ.) um það, að felt verði burtu tillag til ríkissjóðs Dana, er nemi ? sekta fyrir ólöglegar fiskveiðar í landhelgi. Hæstv. ráðherra tók það skýrt fram, að þetta væri ekki borgun fyrir gæzlu með landhelgi vorri, heldur borgun fyrir að teyma skipin inn á hafnir til þess að þau verði sektuð og upptækum afla og veiðarfærum yrði komið í verð, en það er varðskipinu alls ekki skylt. Stundum hafa varðskipin dregið botnvörpungana langar leiðir til þess að fá þá dæmda, eins og t. d. með allri suðurströnd landsins og hingað. Sumarið 1907 minnist eg þess, að varðskip flutti sekan botnvörpung til Stykkishólms, en lögreglustjórinn var ekki viðstaddur. Þá kom varðskipið með sökudólginn hingað, en bæjarfógetinn hafði svo mikið að sýsla vegna konungskomunnar, að hann gat ekki sint málinu. Loks fór skipið til Hafnarfjarðar og þar tókst loks að sekta botnvörpunginn. Þetta tillag var samþ. á þingi 1905 sakir áskorunar frá fólksþingi Dana; því þótti fara um of mikið í súginn af kolum hjá gæzluskipinu. Nú vil eg spyrja: Borgar það sig að nema þetta tillag burtu og eiga þannig á hættu, að varðskipið hætti að draga skipin inn á hafnir? Eg held ekki. Eg hygg, að það sé einmitt búhnykkur fyrir landssjóð að greiða þessa upphæð gegn því að fá skipin dregin inn á hafnir og komið aflanum í verð, en það er algerlega íslenzkt löggæzlustarf.