30.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1388 í B-deild Alþingistíðinda. (2648)

53. mál, sóknargjöld

Pétur Jónsson:

Eg get ekki séð neitt á móti því, að samþ. þetta frv. nú þegar. Þótt það sé eins og gripið út úr skattamálakerfi, sem enn þá er ekki komið á — nefnilega milliþinganefndarinnar — þá get eg ekki annað séð, en að það sé eins fyrir því til bóta á gjaldmáta til prests og kirkju. Eg vildi því mælast til, að minni hluti í nefndinni gerði ekki breyt.till. sína að kappsmáli. Finst ekki hægt að tala um mikla samvizkuþvingun fyrir utanþjóðkirkjumenn að gjalda þetta, þar sem gjaldið er svo lágt. Það er alment viðurkent, að kirkjan sé stofnun, sem þjóðfélagið eigi að styrkja. Á meðan þjóðkirkja á sér stað, er því eigi ósanngjarnt, að allir þeir, sem greiða gjald til annara kirkjufélaga, leggi beinan skatt svona lágan til hennar. Væri nú undanþága fyrir þá menn, sem í engu kirkjufélagi eru, mundu eigi samvizkusömustu mennirnir nota sér hana, þeim þætti það af ýmsum ástæðum ekki viðeigandi. Það yrðu einmitt þeir skeytingarminstu og þeir sem horfðu í aurana hins vegar.

Flestir nota presta til allra aukaverka og mörgum þykir óviðkunnanlegt að segja sig úr kirkjufélaginu, bæði af því, að þeir vilja ógjarna styggia hlutaðeigandi prest og svo líta sumir á það sem óviðeigandi, þótt þeir séu eigi kirkjulega sinnaðir, og þetta eru einmitt betri og samvizkusamari mennirnir. Leiðrétting og réttlæti í þessum efnum fæst því ekki nema með því, að ríkiskirkja í því horfi sem nú er sé af numin.