24.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Þorleifur Jónsson:
Eg hefi leyft mér að koma með þá litlu breyt.till., er hljóðar um það, að ábúandanum á Tvískerjum í Öræfum sé veittur styrkur, svo hann geti haldist við á ábúðarjörð sinni, og geti haldið áfram að taka móti ferðamönnum og veita þeim beina.
Breyt.till. þessi er ekki stór, að því leyti, að það sem fram á er farið, er ekki neitt stórfé, en hún er þýðingarmikil vegna þess, að ef hún gengur fram, gæti það orðið til þess, að lífi ferðamanna og skipbrotsmanna gæti verið miklu betur borgið á þessum stöðum.
Bóndinn á Tvískerjum hefir sent þessa fjárbeiðni til alþingis, og hefir hún komið fyrir fjárlaganefnd, en hún hefir ekki álitið það óeðlilegt, sem farið er fram á, þótt hún hafi ekki getað aðhylst, að veita upphæð þá, sem beðið var um.
Sandarnir í Skaftafellssýslu eru langir og torsóttir yfirferðar, ekki sízt á vetrardag, þegar vötn eru slæm, þeir eru flestir regluleg eyðimörk. Á Breiðamerkursandi var í fyrri daga eigi all-lítil bygð, sem kölluð var Breiðamörk. Nú er þessi bygð að mestu leyti horfin og ekki annað eftir af henni, en þetta eina býli, Tvísker. En eyðileggingin heldur smátt og smátt áfram, sandurinn eykst, en graslendið minkar, svo að nú eru engjar jarðarinnar alveg afteknar og haglendi horfið eða að hverfa.
Tvískerjabóndinn verður að kaupa heyskap að, og sækja hann um 2 mílur vegar vestur fyrir sandinn. Nú er svo komið fyrir þessari jörðu, að af graslendi því, er henni fylgdi er að eins túnbletturinn eftir, sem gefur af sér 50—60 hesta.
Það er mjög óheppilegt, ef býli þetta legst í eyði. Á sandinum eru mörg stór vötn og ill yfirferðar, þar á meðal Jökulsá og Breiðárvötn o. fl. Það er því afar mikilsvert, að bygð geti haldist við á þessum stað, svo að ferðamenn geti haft þar hæli í illviðrum, og svo að þeir geti fengið þar fylgdir yfir hin vondu vötn.
Því er miður, að óvíða mun hægt að benda á staði á eyðisöndum og heiðum þessa lands, nálægt alfaravegum, þar sem hægt væri að halda uppi bygð, sem ferðamenn gæti leitað hælis í illviðrum, en ef hægt væri að benda á slíka staði, væri eðlilegt og sjálfsagt, að slíkt væri styrkt með fjárframlagi. En hér stendur svo vel á, að á þessum stað er gömul bygð, og að eins lítið fjárframlag gæti hamlað því, að hún fari í eyði.
Þessum stað er þannig háttað, að hann getur orðið mörgum mönnum til lífs og bjargar, en þar er ekki lífvænlegt lengur, og er það hinn mesti skaði, ef bygðin þar skyldi leggjast niður, því ábúandinn hefir verið, eins og aðrir Öræfingar hinn gestrisnasti, og greiðugur að fylgja mönnum yfir vötnin og Breiðumerkurjökul, og það oftast endurgjaldslítið. Með leyfi hv. forseta, þá ætla eg að lesa upp kafla úr bréfi til þingsins frá bóndanum í Tvískerjum. Honum farast þannig orð: »Nú er það álit allra kunnugra, sem hér þekkja til, að hér á Tvískerjum þurfi að vera bygð, svo að hægt sé, að bjarga ferðamönnum, sem oft þurfa að leita hingað, einkum á vetrum í slæmu veðri og ófærum vötnum, til þess að fá beina, húsaskjól og fylgdir yfir vötn. Væri hér ekki bygð gæti oft hlotist af því stórslys og manntjón. Árið 1905 strandaði gufuskip hér á Breiðamerkursandi í janúar með 11 mönnum, sem að líkindum allir hefðu beðið bana, hefði eg ekki fundið þá og bjargað þeim heim til mín samstundis, því þeir voru lagstir fyrir upp undir Jökli, hraktir og illa til reika á miðjum sandinum, en vindur var á norðan með miklu frosti og komið var að kveldi dags. Einnig strandaði nærri á sama stað árið 1906 í febrúar gufuskip með 13 mönnum, sem varð það til lífs, að þeir komust hingað að kvöldi dags, hraktir og þreyttir og gat eg skotið skjóli yfir þá og veitt þeim beina. Mörg dæmi mætti fleiri til nefna, er sýna, að nauðsyn sé á, að hér sé bygð. En þar sem jafn-kostbært og erfitt er að búa, þá mun ekki hægt, að öllu leyti, að komast hér af með eigin efnum«. Þetta eru dæmi þess, að fyrir það, að bygð er á þessum sandi, þá hefir verið bjargað tveimur skipshöfnum hvort árið eftir annað. Eins og mönnum er kunnugt, þá eru engir vitar á þessu svæði, sem þó er stór nauðsyn á, t. d. Ingólfshöfða, en því meiri ástæða er til þess, að mannabygð sé haldið við á Tvískerjum. — Eg skal þá ekki fjölyrða meir um þetta, en skal víkja með fáum orðum að þeim kafla fjárlaganna, sem nú er til umræðu.
Það hefir komið tillaga um það, að Eiðaskólanum verði veittur styrkur til byggingar, og h. þm. Sfjk. (B. Þ.) hefir greinilega sýnt fram á þörf þess. Eg skal geta þess, að eg hafði ekki framan af mikla trú á þessum skóla. En á seinni árum hefir alt fyrirkomulag hans breytst, og skólinn komist í það horf, sem nú þykir bezt henta um slíkar stofnanir. Kenslukraftar munu nú vera góðir þar, og yfir höfuð hafa Múlasýslurnar lagt mikið á sig, til að gera stofnun þessa svo úr garði, að hún stæði ekki að baki hinum bændaskólunum. Eg álít það hafi verið skakt af þinginu, að gera ekki Eiðaskólann að landsskóla, því að það getur ekki álitist ósanngjarnt, að ein mentastofnun sé á Austurlandi. Það er farið fram á, að landssjóður greiði helming byggingarkostnaðarins, og eg álít það sé það minsta, sem Austfirðingar geti heimtað, því að þeir ættu að fara fram á, að skólinn yrði gerður að landsskóla og landssjóður þannig tæki hann alveg að sér. Búnaðarskólarnir eru nauðsynlegir ekki að eins til þess, að vekja áhuga bændaefna og leiðbeina þeim í búnaði, heldur líka til þess, að bændaefni geti á þeim fengið dálitla almenna mentun. Því að nú er það svo margt, sem heimtað er af bændum og margar skyldur lagðar þeim á herðar af löggjafarvaldinu, t. d. að sitja í ýmsum nefndum og þótt eg ekki nefni annað en hreppsnefndirnar, sem nýlega hefir verið gert að skyldu, að halda margar bækur, eg man ekki hvað margar, en nógu margar til þess, að það er of vaxið mönnum, sem engrar mentunar hafa notið, að færa allar þær bækur svo í lagi sé.
Þegar á það er litið, að nú á tímum er búskapurinn að ýmsu leyti erfiður, og sú atvinnugrein útheimtir nú miklu frekar en áður útsjón, dugnað og mentun, útheimtir skilning á tíðarandanum og breytingum þeim, er til bóta mættu verða í þeirri atvinnugrein með samvinnu, félagsskap o. fl., þá er auðsætt, að heppilegt væri, að sem flest bændaefni gæti átt kost á góðri mentun á góðum bændaskólum. — Eg hef raunar heyrt það á einum þingmanni, að hann hefir talið eftir þann styrk, sem veittur er til landbúnaðarins, og er það að vísu ekki óeðlilegt, að heyra slíkt, þar sem að löggjafar þjóðarinnar eru svo margir frá kaupstöðum og vita ekki né þekkja hvers þörf er í sveitum, og gera sér ekki nægilega grein fyrir því, hversu mikið er varið í það, að landbúnaðurinn blómgist og jarðræktun aukist. En hvað yrði úr kaupstöðunum, ef sveitirnar ekki legðu mennina til í kaupstaðina, því hingað til hefir fjölgan fólks í kaupstöðunum mest orðið fyrir flutning úr sveitunum. En mér skilst, að eftir því sem sveitirnar blómgast meira, því meira verður gengi kaupstaðanna á ýmsan hátt.
Eg skal ekki fara mörgum orðum um hinar ýmsu breytingartillögur, sem hér liggja fyrir, en að eins geta þess, að þótt eg sé yfir höfuð mjög mótfallinn hinum svokölluðu bitlingum, þá lýsi eg því samt yfir, að eg er meðmæltur því, að frú Torfhildur Hólm fái þessa litlu hækkun, sem fram á er farið, 160 kr. á ári.
Við höfum ekki átt marga kvennrithöfunda og engan sem að minsta kosti hefir verið eins afkastasamur og frú Torfhildur Hólm. Hún hefir varið æfi sinni til að rannsaka og grúska í sögu landsins frá fyrri öldum, til þess að gefa mönnum ljósari og andríkari myndir af ýmsum mikilmennum þeirra tíma, heldur en þær þurru frásagnir, er finnast í annálum og ýmsum ritum frá þeim öldum. Aðalritverk hennar er eins og kunnugt er, 3 skáldrit bygð á sögulegum grundvelli um biskupana Jón Arason, Brynjólf Sveinsson og Jón Vídalín, og hefir alþýðu manna fallið þessi rit hennar vel í geð, og þeirra vegna er rétt, að hún fái dálítinn styrk.
Eg býst líka við því, að ef karlmenn hefðu samið slíkar bækur myndi ýmsum hafa þótt þeir hinir sömu styrks maklegir. Kona þessi er nú komin á elliár, er á sjötugsaldi en heldur þó stöðugt áfram ritstörfum, og mér finst hún því fyllilega makleg þessarar litlu viðurkenningar.