11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (2688)
96. mál, þjóðmenjasafn Íslands
Framsögumaður meiri hlutans (Jón Þorkelsson):
Það er vonandi engin þörf að mæla meira með þessu frv., en eg vil að eins drepa á það, að fyrir þessu safni eru engar reglur eða lög til, svo að safnið sjálft er þá strangt tekið heldur ekki til, samkvæmt gömlum setningum.
Það voru fáein orð í ræðu háttv. 1. þm. Húnv. (H. G.) sem mér komu undarlega fyrir. Hann sagði, að það væri bezta ráðið að loka það helzta af safni voru niður. Þá held eg að það verði lítið, sem vér höfum að sýna. Útlendingum sýnist vér víst vera nógu skrælingjalegir fyrir það, þó að vér lokum ekki menningu vora niður. 1. þm. Húnv. (H. G.) taldi alt það, sem veitt væri til fornmenja eða þjóðmenjasafnsins vera veitt til fornaldarinnar eða fornfræða. Það er ekki rétt. Á safninu eru ekki eingöngu fornir munir, heldur líka menningarmenjar frá nýjustu tímum. Þar eru ljáir, hrífur, koppar og kyrnur frá allra síðustu áratugum. Safnið er ekki eingöngu forngripasafn, heldur þjóðmenjasafn. Og ef menn vilja íhuga, hve mikla þýðingu þetta safn getur haft fyrir þjóðmenning vora og sögu, munu þeir varla horfa í þá lítilfjörlegu fjárupphæð, sem til þess gengur.